Wednesday, March 28, 2012

Af inspectorsframbjóðendum...

Í nokkurn tíma var útlit fyrir að Hörn Heiðarsdóttir núverandi scriba, yrði sjálfkjörin í embætti Inspectors. Varla þarf að benda á að Hörn var sjálfkjörin í scribuna. Hún var auk þess sjálfkjörin í Skólablaðið Skinfaxa (stökkpallinn í scribuna) sem hún ritstýrði. Ástæðuna fyrir því að þessar aðstæður virðast sífellt koma upp hjá Hörn tel ég ekki vera tilviljun, og ekki heldur þá að lítill áhugi sé hjá nemendum til að gegna þessum embættum. Sem dæmi buðu sig 8 manns (að mig minnir) fram til collegu í fyrra. Svo að greinilega er áhugi á þessum embættum (geri mér fyllilega grein fyrir því að embættin eru af ólíkum toga). Er það vegna þess að fólk er hrætt við Hörn? Það þori ekki í Hörn? Maður hefur nú heyrt pískrað á göngunum "Hörn er hæfust" og "Enginn þorir í Hörn" eða "Hörn hefur mestu reynsluna."
Gott og vel, gefum okkur að þetta allt sé rétt.

Mörgum að óvörum gaf Jón Sigurður Gunnarsson, betur þekktur sem "Nonni Litli" ( Litli, vegna þess að hann er lágvaxinn), kost á sér í Inspector. Mörgum þótti það jákvætt, þó aðallega Hörn, sem fannst frábært að vera ekki sjálfkjörin. Nonni hefur vissulega "reynslu" af félagslífinu, en hún fittar ekki alveg inn í þessa "steríótýpísku-embættismanna-reynslu" sem er það sem gefur atkvæði þessa dagana.

Stefnumálin hennar Harnar einkennast af reynslunni. Hörn er realistic og Nonni er soldið úti á þekju.
Þetta er soldið eins og að reyna að kjósa á milli McGonagall og... Ron eða eitthvað. 

Þessi kosningabarátta um inspectorinn er búin að vera þurrari en Góbí eyðimörkin... Voðalega óspennandi allt saman og lítið um drama (sem að dog þykir mikill ókostur) Ég vil fá show. Stelpur að grenja og soleis...

Nonni litli fær lof fyrir að þora í Hörn, það er aðdáunarvert. En ég held að miðað við reynslurúnkið í MR þá séu ekki miklar líkur á því að einhver sem kemur úr stjórn muni tapa fyrir einhverjum sem gerir það ekki. Svo stóð Hörn sig líka bara tussuvel í stjórn og hefur ráð undir hverju rifi. Hún á nebbla svona blóraböggul til að kenna um allt sem fór úrskeiðis ( hann er víst ekki í MR lengur sko)

Sorry Nonni, smá tips, maður gerir sko: Skólablaðið- Scriba - Inspector. Ekki: Blóraböggull- Íþróttaráð- Inspector Platearum - Bingó - Inspector.


"Ég er ekki Þengill"


"ég skutla 95 módelum á kjörstað í skiptum fyrir eitt lítið atvkæði"


72 comments:

  1. Jújú Hörn yrði hæfur inspector en væri ekki skemmtilegra ef hún þyrfti að vinna fyrir því annað en fyrir embættum sínum síðustu ár. Nonni er flottur!

    ReplyDelete
  2. Ég var reyndar ekki sjálfkjörin í Skólablaðið Skinfaxa :)

    -Hörn

    ReplyDelete
  3. fyrir nokkrum viku var ég alveg viss um að kjósa hörn. undanfarið hef ég séð samt meira og meira af tussuhliðinni á henni. ég held ég endi á að kjósa nonna.

    ReplyDelete
  4. Ég ætla að kjósa Nonna, hann er með þetta!

    ReplyDelete
  5. Ég hef heyrt ótrúlega marga segjast ætla kjósa Nonna, og ég ætla líka að gera það. Hann á eftir að gefa henni "a run for her money" að mínu mati.

    ReplyDelete
  6. Þessi grein er fáránleg. Nonni hefur pottþétt þurft að vinna fleiri klukkutíma við Bingó + Íþróttaráð + Inspector Platearum, og hann hefur ekki vælt yfir því í eina sekúndu, þegar maður heyrir vælið i Skólafélagsstjórn úr kílómetra fjarlægð.

    ReplyDelete
  7. Gott að það sé smá samkeppni en þetta starf er ekkert djók. Hörn er solid í þetta embætti. Nonni er meiri áhætta.

    ReplyDelete
  8. Nonni hefur kannski ekki ímyndina í embættið en hann er alveg klárlega hæfur. Það er samt engin séns að hann vinni því MR er ekki skóli þar sem hver sem er má vera inspector þú verður að hafa (eins og tekið er fram í þessari fáránlegu grein - sem btw er alltíeinu er nafnlaus öfugt við þessa nýju stefnu varðhundanna) verið í réttum embættum til að mega bjóða þig fram. Ég geri mér btw grein fyrir að það má túlka þessa grein á þann veg að hún sé ádeila á Little-Miss-Perfect en hvort sem hún er það eður ei þá er þetta ekki það sem skiptir mestu máli við val á inspector.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Eygló, Lóa, Jói, Jakob og Þorgeir standa að baki Varðhundunum.

      Delete
    2. ..og fleiri sem vilja ekki koma undir nafni, kjarklausir aumingjar ef þú spyrð mig

      Delete
    3. hmmm kallar nafnlausa einstaklinga kjarklausa aumingja en kemur sjálf/ur fram sem anonymous.... hræsni much?

      Delete
  9. Það sem skólafélagsstjórn þarf á að halda er solid og heiðarlegt fólk sem er tilbúið leggja allt til að gera næsta ár mun betra en í ár. Hörn er í þetta starf stakk búin.

    ReplyDelete
  10. Maður þarf eiginlega að vera daufdumbur til að sjá ekki ádeiluna í þessu.

    Annars finnst mér þau bæði flott.

    ReplyDelete
  11. Manneskja sem er búinn að klúðra nánast öllu sem fyrir hana var lagt vs. Manneskja sem stóð sig með mikilli prýði í öllu sem fyrir hana var lagt.

    Rétta manneskjan er augljóslega Nonni.

    ReplyDelete
  12. Með þetta "að þurfa að hafa reynslu" dót. Vissulega er það ekki skilyrði að inspector hafi áður setið í stjórn eða hafi eitthverja reynslu á stjórnarsetu, en það er klárlega gífurlegur kostur og oft er það reynslan og "að vera inn í málunum" sem getur verið forskot og skilað sér vel.

    Ég ætla allavegana að kjósa Hörn. Hún er ábyrg, skipulögð, drífandi og flott stelpa :)

    ReplyDelete
  13. ''fyrir nokkrum viku var ég alveg viss um að kjósa hörn. undanfarið hef ég séð samt meira og meira af tussuhliðinni á henni. ég held ég endi á að kjósa nonna.''

    Vá, hvað þetta eru ótrúlega skrítin ummæli um Hörn þar sem hún er með ljúfustu manneskjum sem fyrirfinnast!
    Ég ætla að kjósa Hörn því hún er hæfust í starfið að mínu mati. Ég vona að MR-ingar velji rétt. Þetta embætti er ekkert grín.

    ReplyDelete
  14. Fólk þarf aðeins að róa sig með alvarleikann á þessu embætti. Vil ekkert gera lítið úr því en þegar fólk segir að Nonni sé ekki nógu alvarlegur í þetta skil ég það bara ekki. Hvað væri að því að hafa fyndinn Inspector? Ef Nonni kann að skemmta fólki þá af hverju ekki að kjósa hann í að stjórna félagslífinu?

    Hörn er samt flottur kostur í Inspectorinn og væri það alls ekki slæmt ef hún myndi vinna, þvert á móti. Hún er búin að standa sig vel í ár sem Scriba. Ég vona bara að þetta verði spennandi kosningar :)

    Kv. gaur sem á að vera sama um þetta

    ReplyDelete
  15. Er samt Hörn alveg solid í embættið? Þó hún hafi reynslu þá sýnir sú reynsla okkur að Hörn er ekki hæf í að vera Inspector. Skólafélagsstórn stóð sig hrikalega í ár og af hverju eigum við endilega að gefa Hörn annan séns eftir svona stóran skandal?

    ReplyDelete
    Replies
    1. Telur þú að það sé algjörlega á ábyrgð Harnar? Telur þú að Skólafélagsstjórn hafi ekki gert neitt ''gott'' í ár? Einmitt það að Hörn hafi setið í stjórn sem lenti í erfiðum aðstæðum gerir hana enn hæfari, þ.e. hún veit hvað og hvernig má betur fara.

      Delete
    2. Þú getur ekki bara sagt að Skólafélagsstjórn hafi staðið sig hrikalega. Ertu þá að meina allt árið eða? Það er bara alls ekki rétt...

      Delete
    3. Skólafélagsstjórn skilaði 1,2 milljón króna tapi. Finnst ykkur að Hörn sem var í þessari stjórn eigi að fara í inspector. Hún er þegar búin að skíta upp á bak, er ekki kominn tími á að leyfa öðrum að komast að. Fólk sem kann að fara með fjármál kannski?

      Delete
    4. Scriba sér ekki um fjármál skólafélagsins, Hörn hafði ekki einu sinni aðgang að þessum reikningum sem lentu í vanskilum.

      Delete
    5. Er það Hörn að kenna að skólafélagið kom út í 1,2 milljóna mínus? Það var ekki í hennar verkahring að sjá um fjármálin heldur gjaldkerans og inspectors. Ef að Morkinskinna hefði ekki komið út myndu þið kenna Silju eða Árna um það? Það að skólafélagið sé í miklu tapi hefur ekkert að gera með Hörn og hennar vinnubrögð. Fáránleg rök að halda því fram að hún sé ekki hæf vegna þess.

      Delete
    6. Ef félag tapar pening þá er öll stjórnin ábyrg ekki bara gjaldkerinn eða formaðurinn. Mér finnst frekar skrýtið að fólk hafi ekki talað um fjármálum á þessum fundum sínum. Það mætti bæta stjórnina á komandi ári að hafa svona fjármálafundi til að passa að e-r einn sjái ekki um fjármálin. Hörn hefði alveg mátt biðja þengil um að fá að sjá stöðuna þarna og sömuleiðis Þórður.

      Delete
    7. Eins og kom fram á skólafundinum endaði skóló ekki bara í svona miklum mínus út af einhverju bókfærsluklúðri eða vanrækslu quaestors, heldur aðallega útaf fáránlegum ákvörðunum sem voru teknar, td. að skila busaballinu í trilljón sinnum minni gróða en venjulega. öll stjórnin ber ábyrgð á svona ákvörðunum, ekki bara þengill og árni.

      Hörn á að sjá sóma sinn í því að biðjast afsökunar á því sem gerðist í vetur... og persónulega finnst mér mjög skrítið að hún hafi ákveðið að bjóða sig fram eftir að hafa setið í þessari ömurlegu skólafélagsstjórn

      Delete
    8. Já, alveg satt. Að næst æðsti embættismaður stjórnarinnar skuli halda að hún hafi ekki borið neina ábyrgð og segja að þetta væri allt Þengli og Árna að kenna er algjör þvæla. Hún var með í að taka þessar ákvarðanir svo hún ber ábyrgð á þessu.

      Delete
  16. Er ég sá eini sem finnst að þrátt fyrir að margt af því sem núverandi stjórn gerði klikkaði eða hefði mátt gera betur, þá var einnig fjölda mörg atriði sem þau gerðu vel? Fyrir það eiga þau hrós skilið. Finnst fólk vera að einblína of mikið á "vondu hlutina" og hunsa "góðu hlutina".

    ReplyDelete
  17. Á þetta ekki að vera hlutlaust? Persónulega ætla ég að kjósa Hörn en það má ekki hæla einum frambjóðanda á almennri bloggsíðu.. Þetta hlýtur að vera eitthvað bannað.

    ReplyDelete
    Replies
    1. you, sir, have a point...

      Delete
    2. Hver sem er má blogga um það sem honum sýnist, félagi. Be my guest og opnaðu þína eigin bloggsíðu.

      Delete
    3. Mér finnst báðir frambjóðendur fá bara dass af dissi hvort um sig, og mér finnst ekkert hallað meira á Hörn heldur en Nonna í þessari grein.

      Og ádeilan um MR embættismannakerfið er og byggð á föstum grunni og mér finnst það ekkert skjóta á Hörn, heldur viðhorf okkar MRinga. Þetta embættismannaformúlurúnk sem tíðkast í MR er augljóslega ástæðan fyrir því að það leit út fyrir að Hörn fengi engan mótframbjóðanda.

      Annars finnst mér Hörn glæsileg kona og ég held að hún standi sig mjög vel ef hún verður kosin.
      Og Nonni glæsilegur maður og mun örugglega líka standa sig vel ef hann verður kosinn.

      Við erum heppin að vera með tvo flotta frambjóðendur.

      Kríli ham kríli ró!
      Kv. Málamiðlunargló

      Delete
    4. sammála Eygló. mér finnst þetta frekar sanngjörn umfjöllun hérna að ofan

      Delete
    5. Nonni litli fær lof fyrir að þora í Hörn, það er aðdáunarvert. En ég held að miðað við reynslurúnkið í MR þá séu ekki miklar líkur á því að einhver sem kemur úr stjórn muni tapa fyrir einhverjum sem gerir það ekki. Svo stóð Hörn sig líka bara tussuvel í stjórn og hefur ráð undir hverju rifi. Hún á nebbla svona blóraböggul til að kenna um allt sem fór úrskeiðis ( hann er víst ekki í MR lengur sko)

      Sorry Nonni, smá tips, maður gerir sko: Skólablaðið- Scriba - Inspector. Ekki: Blóraböggull- Íþróttaráð- Inspector Platearum - Bingó - Inspector.

      Mér finnst þetta vera ákveði rakk á Nonna, sem er að leggja sig fram, og að Hörn, þó hún sé hæf að mínu mati, megi samt ekki skyggja á Nonna því hún er með "betri" reynslu

      Delete
  18. Nonni er málið! Hann er ótrúlega duglegur og klárar allt sem hann byrjar á.. Hörn er kannski öruggari valkosturinn, en persónulega treysti ég Nonna betur til þess að sinna þessu embætti.
    Mætti líka alveg hæla Nonna aðeins í þessu bloggi, hann er búin að standa sig ótrúlega vel

    ReplyDelete
    Replies
    1. Það er ekki alveg rétt að Nonni klári allt sem hann byrjar á. Suma daga byrjar hann á að hringja inn í tíma en hringir síðan bara ekkert út.

      Delete
    2. afhverju er ekki hægt að læka neitt hérna?

      Delete
  19. Hörn er flott stelpa og allt það, en stjórnin hennar klúðraði fjármálunum og komandi árgangur í MR þarf að gjalda fyrir það. Viljum við hana þá áfram í Skólafélagsstjórn, ég bara spyr.

    ReplyDelete
  20. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Menn eiga alveg að passa sig, en einnig þarf sannleikurinn að koma fram.

      Delete
  21. Ég er sammála Tómasi, Hörn komst naumlega í Skólablaðið sem varð síðan að öllu leyti afar ómerkilegt blað. Í kjölfarið var hún sjálfkjörin í Scribu og átti hún sömuleiðis þriðja árið í röð að vera sjálfkjörin í inspector en einhver hugsaði ,,þetta er ekki rétt''. Hvernig getur það staðist að Hörn komist svo léttilega í svo mikilvægt embætti. Eins og sjálfvirkur rúllustigi í kringlunni. Jón steig fram og gerði það sem enginn annar þorði að gera, ekki í gríni eins og svo margir halda, heldur af fullri alvöru. Hann hleypur upp stigann og hann er ekkert þreyttur, á nóg inni, getur hlaupið þessa stiga á höndunum og væri ekkert að tvítóna við það.

    Það er greinileg að það er ekki margt sem skiptir Nonna jafnt miklu máli og MR. Jón hefur gefið allt fyrir félagslífið og veit ég að hann leggur sig 110% fram bæði í blíðu og stríðu sem sést hefur seinustu ár. Ég held að Nonni sé klár strákur og ef hann fengi inspector sprotann í hönd væri hann ekkert að fara að rúnka sér með honum heldur töfra fram það sem allir vilja: frábært félagslíf.

    Semsagt ég er ekki sammála þessum ,,þrepum'' það er að segja: skólablaðið, scriba síðan inspector.
    Það þekkja allir Nonna, hann þekkir alla, og það vita allir hver hann er og að hann sé alltaf til staðar. Hann hefur gert margt fyrir þennan skóla sem Hörn hefur ekki gert. Hann gefur göngunum líf, leggur allt að veði og það elska hann allir.

    ,,Undanfarið hef ég séð samt meira og meira af tussuhliðinni á henni''

    Ég hef aldrei séð neina tussuhlið af Hörn og veit ég að hún er mjög indæl og klár stúlka. Þetta segir því kannski meira um þig heldur en Hörn.

    ,,Hörn er solid í þetta embætti. Nonni er meiri áhætta.''

    Var ekki fyrrverandi inspector solid? Ég skil hvað þú meinar með því að hún sé solid því klettar eru líka solid, er það ekki? Getur ekkert falið þig undir fossinum endalaust.

    ,,Gífurlegur kostur og oft er það reynslan og "að vera inn í málunum" sem getur verið forskot og skilað sér vel.''

    Já Hörn hefur auðvitað reynsluna...af Morkinskinnu? ekki inspector embættinu. Einar Lövdahl leiðin virkar, en þó ekki alltaf.

    ,,Nonni hefur vissulega "reynslu" af félagslífinu, en hún fittar ekki alveg inn í þessa "steríótýpísku-embættismanna-reynslu" ''

    Ég hélt nú einmitt að reynslan af félagslífinu væri það sem skipti máli. Þetta að fitta inn í stereó týpu þvaður er líka út í hött. Hljómar eins og forsenda hörmulegs eineltis eða kynþáttahyggju nasista um að aríar væruð æðri en gyðingar. Kröfurnar sem þú talar um eru semsagt algjört kjaftæði! Rökin falla um sig sjálf.

    Eins og hefur komið oft fram hér að ofan, skólafélagið stóð sig hörmulega í ár og var Hörn eins og lús milli tveggja nagla og er ég alls ekki að gefa í skyn að sé henni eingöngu að kenna. Lítið sem hún gat gert og minna sem hún gerði.

    Þessar kosningar verða þó spennandi og allt getur skeð.

    Kv. gaur sem áð vera sama um þetta er það samt ekki.

    ReplyDelete
    Replies
    1. ,,Gífurlegur kostur og oft er það reynslan og "að vera inn í málunum" sem getur verið forskot og skilað sér vel.''

      Já Hörn hefur auðvitað reynsluna...af Morkinskinnu? ekki inspector embættinu. Einar Lövdahl leiðin virkar, en þó ekki alltaf.

      Þú talar eins og eina reynsla Harnar síðasta árs sé af Morkinskinnu. Hörn sat í Skólafélagsstjórn og hefur því skipulagt heilt skólaár og veit hvernig Skólafélagsstjórn starfar. Þú segir einnig að hún hafi ekki reynslu af inspector embættinu, hefur Nonni einhverja reynslu af því? Nei.

      Delete
    2. Það sem ég er að vitna í er að það er talað um að það sé sjálfsagt mál fyrir Hörn að vera inspector bara út frá því að hún hafi verið scriba. Sem er rökleysa ef þú hefur lesið þráðinn. Og nei ég sagði ekki að Nonni hefði reynslu af því, það eina sem ég sagði var að Hörn hefur ekki reynslu af því því og það stendur einnig skýrum stöfum hér ofar.
      Svo ég vitni í:

      ,,Skólafélagsstjórn skilaði 1,2 milljón króna tapi. Finnst ykkur að Hörn sem var í þessari stjórn eigi að fara í inspector. Hún er þegar búin að skíta upp á bak, er ekki kominn tími á að leyfa öðrum að komast að. Fólk sem kann að fara með fjármál kannski?''

      ,,Ef félag tapar pening þá er öll stjórnin ábyrg ekki bara gjaldkerinn eða formaðurinn. Það mætti bæta stjórnina á komandi ári að hafa svona fjármálafundi til að passa að e-r einn sjái ekki um fjármálin. Hörn hefði alveg mátt biðja þengil um að fá að sjá stöðuna þarna og sömuleiðis Þórður.''

      Semsagt ef hún hefur svona góða reynslu í Skólafélagsstjórn, skipulagt þetta allt, og veit hvernig félagið starfar. Afhverju á hún þá að taka enga ábyrgð á þessu bullandi tapi skólafélagsins sem er gjörsamlega á hausnum hvað fjármál varðar. Ætlar hún bara að taka þessa ábyrgð sem hún tók ekki seinast og taka hana með glöðu geði að sér þrátt fyrir að hún gerði það án afláts seinast. Afhverju ætti hún að gera það núna en ekki þá. Það fyrsta í stöðunni væri að biðjast afsökunar á því að fara svona með peninga skólafélagsins sem við borgum í. Svo ég minnist ekki á Jólaballið, skólafélagsskírteinin, þá áttu þau ekki einu sinni efni á Skólablaðinu/Skinnfaxa sem dugleg markaðsstjórn bjargaði fyrir horn á seinustu stundu....

      Delete
  22. Er ég sá eini sem finnst þetta að þurfa vera með reynslu "rúnk" ekki mikilvægt? Sjáið Kára, hann hafði enga "reynslu" fyrir utan setu í MT ritstjórn og Framtíðin hefur ekki verið svona flott í mörg ár.

    kv. gaurinn sem nennir ekki meiri rifrildi um mikilvægi reynslu

    P.S. En aftur á móti er hún ekki að skemma fyrir að hafa tekið þátt í svona stússi áður.

    ReplyDelete
  23. Maður spyr sig hvaða reynslu manneskja hefur sem að firrar sig allri ábyrgð á því sem að illa fór. Hörn horfði á marga hluti fara illa og segir í hvívetna að hún hafi einfaldlega ekki verið inn í þeim málum. Stendur hún þá ekki bara eftir með sömu reynslu og meirihluti MR-inga sem að horfði á hlutina stefna í óefni? Það er skrítið að manneskja sem að sat í stjórn í ár og gagnrýnir mikið vinnulag stjórnarinnar virðist ekki tekið á sig rögg og reynst betur en lofar á sama tíma að á næsta skólaári muni hún sjá til þess að allt verði betra.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Er þetta eitthvert grín eða? SÖMU REYNSLU og meirihluti MR-inga?? Það er fæntanlega augljóst að meirihluti MR-inga hafa ekki sömu reynslu og Hörn???? Það er einnig mjög mikil einföldun að segja að Hörn firri sig ALLRI ábyrgð og hafi horft á marga hluti fara illa því hún hafi ekki verið inn í þeim málum. Það er bara alls ekki rétt. Hörn stóð sig með stakri prýði seinasta skólaár.

      Delete
  24. Það er svo miklu meira sem þarf að vita um þetta starf heldur en bara "hafa geggjað gaman og halda flott böll"...það er fáránlegt að halda því fram að reynsla skipti engu máli, auðvitað skiptir hún máli...skólafélagið er alveg semi eins og fyrirtæki, og mér finnst eðlilegt að það sé eins og á öðrum vinnustöðum að maður þarf að vinna sig upp, það gengur ekkert að fá manneskju til að vera framkvæmdastjóri sem hefur aldrei gert neitt svoleiðis...

    Og svo hef ég heyrt að Hörn og collegurnar hafi ekki einu sinni vitað af sumum þessum skuldum fyrr en Þórður tók við...Hörn veit hvað fór úrskeiðis núna og getur því reynt að bæta úr því og gera betur.

    Og með að einhver nefndi að Þengill hefði verið "solid" kostur eins og Hörn, þá fannst mér hann eiginlega bara the lesser of two evils (ok kannski ekki evils...en þið fattið).

    Ég treysti Hörn fullkomlega fyrir þessu embætti, mig er búið að gruna síðan í 3.bekk að hún myndi verða inspector.

    ReplyDelete
  25. Finnst engum fáránlegt að hún hafi bara ekki vitað að einhverjum skuldum? Hún á að fara fram á það sem stjórnarmeðlimur að vera upplýst um öll mál Skólafélagsins

    ReplyDelete
    Replies
    1. Loksins eitthvað með fullu viti

      Delete
  26. hvort finnst ykkur betra að hafa remolaðið ofan á eða undir pylsunni

    ReplyDelete
  27. http://www.youtube.com/watch?feature=player_detailpage&v=EvQh4zXTxHs


    kv. Lóa

    ReplyDelete
  28. djöfull eru allir eitthvað gg sniðugir hérna með lók í munni og að tala með rassgatinu á sér

    ReplyDelete
  29. bíddu Mr-ingar...eru þeir ekki bara alltaf að runka sér yfir latínu eða heheh :D

    ReplyDelete
  30. bíddu vinniði á nings eða?...það vita allir að það er fæntanlega pizzamadness í gangi svo hvejrum er ekki drull

    -kóngur

    ReplyDelete
  31. Ég er í meira lagi sjokkeraður yfir því umtali sem Hörn er að fá hérna. Það að fjármálin hafi klúðrast hafði ekkert með hana að gera, enda hafði hún ekki aðgang að þeim og augljóslega Þengill og Árni sem skitu uppá bak. Mér hefði þótt gaman að sjá einhvern klína því uppá Þengil og Árna ef að t.d. Morkinskinnan hefði klúðrast.

    Svo er það líka eins og helsti ókostur Harnar sé að hún sé með meiri "reynslu" en góðu hófi gegni. WTF? Það er ekki eins og reynslan hafi orðið Þengli að falli eða að reynslulausir séu undir verndarvæng örlaganna. Þengill var bara lygari og haugur en Kári duglegur. Reynslan skiptir ALLTAF mjög miklu máli en karakter einstaklinganna spilar líka stórt hlutverk.

    Mér finnst Nonni litli alveg fráb og fyndinn strákur og fullkominn í að skemmta nemendum á vegum undirfélaganna. En hann veit ekkert um störf Skólafélagsins og þegar kemur að því að skipuleggja allt það sem kemur að félagaslífinu verður maður að vita hvernig hlutirnir ganga fyrir sig en ekki lofa bara að allt verði æðislegt.

    Hörn hefur alltaf verið með sitt á 100% hreinu og er virkilega flott stelpa með bein í nefninu og ég get varla ímyndað mér betri inspector. Er fólk svona hrætt við að fá loksins stelpu sem inspector eða haldið þið virkilega að Nonni sé hæfari til að draga Skólafélagið á réttan kjöl? Hörn hefur allavega minn stuðning og ég mun kjósa mér inspectrix fyrir næsta ár!

    ReplyDelete
    Replies
    1. Árni var ekki með aðgang að reikningnum því hann var ekki orðinn nógu gamall, því átti einhver annar að hafa aðgang líka, ekki bara Þengill, og það hefði þá átt að vera Hörn þar sem hún er næst veigamesta embætti innan skólafélagsstjórnar. En nei hún fór ekki fram á aðgang og leyfði hlutunum bara að gerast án þess að grípa inní. Það er fáránlegt af henni að segjast ekki bera ábyrgð á þessu.

      Delete
    2. Margir quaestorar hafa haft aðgang að reiknigum félagsins þó að þeir hafi ekki verið orðnir 18 ára. Ég held að fólk geri sér ekki alveg grein fyrir því að ákveðin verkaskipting ríkir innan stjórnarinnar. Ef þú býður þig fram í quaestor þá sérð þú um reikningana, þó þú sért ekki orðinn sjálfráða. Hörn bauð sig fram í scribu og á þar af leiðandi ekki að hafa aðgang að reikningum og það er fáránleg krafa að hún taki fjármálin á sig því að Árni var að bíða eftir því að verða nógu gamall!

      Einnig sagðist hún á Skólafélagsfundinum oft hafa spurt um stöðu fjármálanna og þá hafi hún fengið svör sem hún hafi ekki haft ástæðu til að véfengja en komu í ljós að voru ekki endilega sönn.

      Delete
    3. Þú veist greinilega ekki alveg hvað þú ert að tala um því að Árni mátti ekki hafa aðgang þar sem hann var ekki orðinn nógu gamall. Þá verður einhver annar að taka það að sér svo að reikningurinn sé ekki bara í höndum einhvers eins.

      Delete
  32. Af hverju hafa allir svona mikið á móti Nonna? Þó svo að hann hafi ekki reynslu í sömu hlutum og Hörn þýðir það ekki að hann hafi ekki næga reynslu. Það á líka að vera gaman í Skólafélaginu, ekki bara fjármál og útgáfustarfsemi og allt það sem Hörn talar um. Segi samt ekki að það verði ekkert gaman með Hörn sem inspector, en ég held samt að það muni verða skemmtilegra og fjörugra með Nonna. Líka, af hverju þarf endilega að hafa farið réttu leiðina til að verða inspector, þ.e.a.s. Skólablaðið- Scriba - Inspector? Væri ekki bara gaman að fá nýja sýn á þetta, einhvern sem hefur unnið í e-u öðru en þessu? Ég held það. Svo virðast allir halda að Nonni geti ekki séð um fjármálin, en ég sé ekki hvernig Hörn er hæfari til þess bara af því að hún er scriba?
    En þetta er bara mín skoðun.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Til þess að það geti verið skemmtilegt í Skólafélagsstjórn þarf að hafa góðan fjárhagslegan grunn og því mikilvægt að huga að því fyrst.
      Það er allavega mín skoðun.

      Delete
    2. Það er ekki inspectorinn sem gerir skólaárið skemmtilegt you baffoons! Inspector á einmitt að sjá um að leiðinlegu hlutirnir séu í lagi. Það er ástæða fyrir því að það eru ótal undirfélög sem sjá um að gera skemmtilega hluti. Eins skemmtilegur og Nonni er þá er hann ekkert að fara að vera með uppistand í hverju hádegishléi og góð böll verða ekkert haldin nema að það sé mikil og LEIÐINLEG vinna á bak við þau!

      Wake up and smell the coffee!

      Delete
    3. Þetta eru fáránleg rök, inspector stendur á bak við allar stærstu ákvarðanir félagslífsins í MR. Hann sér um að allt sé í lagi, leiðinlegu hlutirnir og þeir skemmtilegu. Finnst þau jafn vanhæfir frambjóðendur, Nonni er duglegur og flottur en alls ekki Inspector.

      Hörn er hæfari á pappírnum, en hvernig er hægt að klúðra tveimur verkefnum, sem hún hafði marga mánuði í að skipuleggja svona illa? Það er rosalegt, og ég hallast því að því að kjósa hvorugt.

      Þetta er líka rosalega ofmetið allt saman, skiptir engu máli hversu mikla reynslu manneskja hefur. Svo fremi sem hún er dugleg, metnaðarfull og framsækinn heppnast allt vel. Þengill var semí með eitt af þessu tímabundið en Kári var með þetta allt.

      Smell the shit!

      Delete
  33. Finnst það frekar skrítið samt þegar fólk er að benda á Árni og Þengill beri einir ábyrgð á fjármálunum. Stjórn sem heild ber ábyrgð á fjármálunum. Og ef Hörn var svona lítið inn í fjármálunum og restin af stjórninni líka þá hefði hún og restin líka átt að krefjast þess að fá að sjá þau. Svo einfalt er það bara. Þetta Morkinskinnu dæmi er bara engan vegin sambærilegt. Það er bara í verkahring scribu. Ég hefði viljað sjá Hörn bera einhverja ábyrgð á gjörðum þeirrar stjórnar sem hún sat í en ekki bara kenna Þengli um nánast allt og öðru á Árna.

    Einnig má benda á að samkvæmt grein 4.3 í skólafélagslögum stendur: "Scriba scholaris sér um útgáfu skólaskírteina [...] eigi síðar en þremur vikum eftir skólasetningu." Og eins og flestir vita var það ekki svoleiðis.

    Engu að síður finnst mér Hörn flottur kandídat í þetta verðuga verkefni og held að þetta verði spennandi kosning. Get sjálfur ekki ákveðið mig.

    ReplyDelete
  34. Nú hefur Nonni ákveðið að hækka ekki skólagjöldin því honum finnst að nemendur ættu ekki að bera ábyrgð á mistökum Skólafélagsstjórnar. Það er alveg rétt og það er mjög auðvelt að falla fyrir Nonna þegar maður heyrir þetta.

    En maður verður að sama skapi að átta sig á að ef Nonni ætlar að reiða sig á góða markaðsstarfsemi og góðri aðsókn á böll til að koma Skólafélaginu aftur í sína upprunanlegu stöðu mun það taka (að minnsta kosti) allt skólaárið. Á meðan yrði erfitt að framkvæma alla þá skemmtilegu hluti sem hann hefur lofað. Góður fjárhagur er grundvöllur þess að geta gert eitthvað skemmtilegt.

    Ég efast ekki um að Hörn (ásamt næstu Skólafélagsstjórn) sé fullfær um að skipuleggja skemmtilegt og viðburðaríkt skólaár en eðlilegast er að einbeita sér fyrst að því að koma Skólafélaginu á réttan kjöl. Sérstaklega þegar þessi mikla krafa er frá nemendum að bætt verði fyrir mistök síðustu stjórnar.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Nú sat Hörn í Skólafélagsstjórn sem skilaði 1.2 milljón króna tapi. Finnst þér þá rétt að hún eigi að hækka skólafélagsgjöld til að bæta fyrir tap sem hún ber að hluta til ábyrgð á?
      Hún var í stjórn sem tók slæmar ákvarðanir sem bitnuðu á fjármálunum, m.a. að eyða mun meiri pening í busaballið en hefð er fyrir og halda dýra árshátíð á broadway þegar stór hluti MRinga var á airwaves. Það að hún hafi ekki vitað um fjárhagsstöðu skólafélagsins er mjög undarlegt. Sérstaklega í ljósi þess að bókhaldið á að vera öllum opið.
      Auk þess er ekki hægt að fullyrða að það muni taka Nonna a.m.k. heilt ár að bæta fjárhag Skólafélagsins og að það muni hafa veruleg neikvæð áhrif á félagslífið. (líkt og færslan hér að ofan gefur til kynna)

      Delete
    2. Hvað fær þig til að halda að Nonni geti yfir höfuð bætt fjárhaginn? Ég efast um að Nonni geri sér grein fyrir hvað hlutirnir kosta og ég held að öll reynslan hans af því að mæta á böll muni ekki hjálpa honum í að skila inn meiri gróða af þeim eins og hann lofar.

      Delete
  35. Ég skil ekki fólk sem heldur því fram að reynslan skipti ekki máli. Það er svo margt sem gerist bak við tjödin sem hinn venjulegi nemandi hefur ekki hugmynd um. Eins og framtíðarstjórn hefur oft talað um er ástæða þess að þau héldu ekki tebó í sumar sú að ekkert þeirra kunni það... Það er mikilvægt, í eins stóru batteríi og Skólafélagið er, að hafa a.m.k. einn sem veit hvað hann er að tala um. Þó svo að Nonni hafi farið á mörg böll þýðir það ekki að hann kunni að halda þau. Auðvitað gæti hann spurst fyrir um það en viljum við ekki hafa inspector sem er með hlutina á hreinu?
    Ég sé líka að margir tala um að Hörn hafi átt að krefjast þess að fá aðgang að reikningunum en allir þeir sem hafa átt nokkur samskipti við Þengil vita að það er hægara sagt en gert að krefjast nokkurs af honum. Maðurinn er gjörsamlega siðblindur og lýgur við hvert tækifæri sem til þess gefst. Fyrir utan að ef einhver hefði átt að krefjast að sjá reikninginn er það Árni. Þess má geta að þegar Árni Freyr var quaestor hafði hann ekki prófkúru á haustmisseri en var samt með allt bókhald á hreinu.
    Hörn hefur allan minn stuðning á morgun.
    P.S. ég er samt mjög ánægður með að Nonni hafi gefið kost á sér. Það er fyrir neðan allar hellur að hafa sjálfkjörinn inspector

    ReplyDelete
    Replies
    1. Ragnhildur þú þarft ekki að kommenta anonymous við vitum öll að þetta ert þú

      -við sem hlustum á þig tala um siðblindu

      Delete
    2. Þetta er reyndar ekki Ragnhildur. Ástæðan fyrir því að þetta er anonymous er að ég hef ekki áhuga á að allir viti hvern ég ætla að kjósa :) Mér þætti vænt um að það héldist þannig

      Delete