Á vorönn skráðu 83% nemenda sig í Framtíðina. Félagið hélt frábærar Megavikur og Tebó og MR-ví heppnaðist vel (þrátt fyrir tap). Eftir jól tóku svo stærstu verkefnin við, en þrátt fyrir það ákváðu þrír af fimm meðlimum framtíðarinnar að taka þátt í leikhópi Herranætur. Árshátíðin heppnaðist ágætlega og skreytingarnar voru skemmtilegar en dagskrá vikunnar var þó af að skornum skammti. Framtíðin hélt svo Megaviku sem var ekkert svo "mega" og tebóin eftir jól voru ekki uppá marga fiska. Útgáfan var til fyrirmyndar (fyrir utan pínku ponsu smá siðlaust fyrsta lokablað) og Sólbjartur hélt þó ótrauður áfram og eru nú aðeins undanúrslit og úrslitakeppnin sjálf eftir. Grímuballið var svo mjög vel heppnað.
Þess má geta að forsetaefni Framtíðarinnar koma báðir úr Framtíðarstjórn, þeir Nóri Gun og Kjarri Strange. Í dag fóru fram dramatískar kappræður milli þeirra í Cösu og er því viðeigandi að fjalla um þá í kjölfarið af þeim.
Arnór Gunnar Gunnarsson
Arnór hefur verið áberandi frá því að hann steig fyrst fæti í MR. Hann hefur eytt miklum tíma og kröftum í félagslífið, en hann var í ritstjórn Loka Laufeyjarsonar og Myndbandanefnd Framtíðarinnar í 4.bekk ásamt því að vera tíður gestur í Bingóþáttum þess vetrar. Hann hefur einnig verið áberandi í ræðumennsku, slegið í gegn í Sólbjarti og stofnað leikfélag Framtíðarinnar, Frúardag.
Í ár sat hann svo í stjórn Framtíðarinnar og hefur staðið sig eins og hetja. Þó þykir það einhverjum það vera svartur blettur á stjórnarsetu Arnórs að hann hafi tekið þátt í ,„Herranætursamsærinu" ásamt tveimur öðrum stjórnarmeðlimum Framtíðarinnar. Arnór gerði þó ýmislegt til þess að bæta upp fyrir þetta, en hann skráði sig í óreglulegt nám til þess að getað unnið að undirbúning Árshátíðarinnar, sem er vitaskuld stærsta verkefni Framtíðarstjórnar.
Í kappræðunum í dag Arnór steig öruggur á svið og flutti stefnumál sín af öryggi og ákefð, en hann virtist brotinn maður þegar hann gekk af sviðinu. Þegar undirritaður dog bar upp spurningu varðandi það hvaða áhrif Herranæturþátttaka hans og annarra stjórnarmeðlima hafði á störf Framtíðarinnar, svaraði hann að það hafi ekki komið neitt að sök. Þessi umræða kveikti eld í fundargestum og risu nokkrir einstaklingar upp og beinlínis rökkuðu Arnór niður (svolítið eins og hann einn bæri ábyrgð á lélegum tebóum og megavikum). Umræðurnar fóru niður á lægra plan en dog telur skynsamlegt. Spurningin hafði þó vissulega rétt á sér, enda er ekkert eðlilegt við það að meirihluti framtíðarstjórnar skuldbindi sig í verkefni af stærðargráðu á borð við Herranótt.
Arnór ætlar sér stóra hluti sem Forseti, en hann lofar hverjum nýjum viðburðinum á fætur annars og á fundinum í dag sagðist hann telja það vera meira en gerlegt að standa við þessi loforð ásamt því að sinna almennum skildum Framtíðarinnar af kostgæfni.
Bæklingurinn hans er flottur og ekkert út á hann að setja, fyrir utan það að það er svo mikið í honum að maður nennir varla að lesa það allt, sem gæti þó líka talist sem kostur, enda er hann er stútfullur af nýjum OG gömlum hugmyndum. Allt er þetta þaulhugsað og vel útskýrt. Hann fær meðmæli úr öllum áttum (meira að segja frá Paragvæ) og þar á meðal frá mótframbjóðanda hans, Kjartani, sem undirrituðum dog finnst voða sætt.
Eftirlætisstefnumál: Selsferðir
Lélagasta stefnumál: Málfundir um fótbolta
Einkunn bæklings: A-
Kjartan Orri Þórsson
Kjartan Orri er, líkt og Arnór Gunnar, félagsmálatröll af guðs náð. Hann hefur (aftur, eins og Arnór) eytt miklum tíma og kröftum í félagslífið, en í fyrra tók hann þátt í Herranótt og ritstýrði Loka Laufeyjarsyni eftir jól. Í ár sat hann svo í stjórn Framtíðarinnar sem meðstjórnandi og umsjónarmaður Sólbjarts. Hann hefur líka verið áberandi í tónlistarlífinu, en hann er í MR kórnum, tók þátt í söngkeppninni í fyrra og er söngvarinn í 80's dúóinu Joe and the Dragon. Auk þess var hann frumkvöðull 80's hljómsveitarinnar sem spilaði á hinu goðsagnakennda 80's tebói fyrir áramót (Kjartan er eitthvað 80's legend).
Á sama tíma og hann hefur verið að vaða uppi í MR hefur hann líka verið að vinna í félagsstarfi utan veggja skólans, en hann er m.a. einn af frumkvöðlum ungmennahússins "Íbúðarinnar" sem stofnað var í laugardalnum í sumar.
Kjatan var sprækur sem lækur þegar hann flutti mál sitt í dag og virtist vera í stuði með guði.
Kjartan tók ekki þátt í Herrnætursamsærinu mikla þrátt fyrir að komast inn í leikhópinn. Hann varð ekki fyrir jafn miklu aðkasti og Arnór í dag, en komst þó ekki undan verjendum Arnórs, sem létu svolítið eins og Kjartan bæri sök á því að Arnór hafi verið rakkaður niður (reyndar kom það ekki nógu vel út þegar Hildur Ýr gat ekki setið á sér þegar Arnór sat fyrir svörum og sagði það óvirðingu við gagnvart þeim kusu hann að hafa skuldbundið sig í Herranótt (aftur, athugasemd sem átti hugsanlega rétt á sér, en það hefði, eðlilega, komið sér betur fyrir Kjartan ef hún hefði komið úr annarri átt)).
Þegar Kjartan var svo spurður út í það hvernig hann myndi tækla sambærilegar aðstæður sem forseti sagði hann það vera „prinsipp mál" fyrir honum að þeir aðillar sem kosnir eru í stjórn einbeiti sér að þeim verkefnum sem þeim hefur verið treyst fyrir.
Þar höfum við það.
Kjartan og Arnór eru með nokkuð ólíkar stefnur. Arnór leggur áherslu á nýjar hugmyndir, á meðan Kjartan virðist vilja leggja meiri áherslu á að gera þeim Framtíðarviðburðum sem er nú þegar hefð fyrir betri skil, þ.e. „ráðast að rótum Framtíðarinnar". Hann tekur þó fram að honum þætti gaman að gera eitthvað nýtt, en telur það vera samvinnuverkefni stjórnarinnar.
Kjartan og Arnór eru með nokkuð ólíkar stefnur. Arnór leggur áherslu á nýjar hugmyndir, á meðan Kjartan virðist vilja leggja meiri áherslu á að gera þeim Framtíðarviðburðum sem er nú þegar hefð fyrir betri skil, þ.e. „ráðast að rótum Framtíðarinnar". Hann tekur þó fram að honum þætti gaman að gera eitthvað nýtt, en telur það vera samvinnuverkefni stjórnarinnar.
Bæklingurinn hans Kjartans er stílhreinn og fallegur og í sama litaþema og einkennisbuxurnar hans.
Það er ekki jafn mikið í honum og í bæklingnum hans Arnórs, en það er þó ekkert stórmál, enda eru stefnumálin færri og hnitmiðaðri. Hann fær meðmæli úr mörgum ólíkum áttum, meðal annarra Arnóri sjálfum (cute) og vini hans úr stjórn MH, sem hefur unnið með honum í verkefnum utan skólans.
Kjartan mætti vera skýrari þegar kemur að því að útskýra sum stefnumál.
Eftirlætisstefnumál: Tebóin (Uppistandstebó, hljómsveitartebó ofl.)
Eftirlætisstefnumál: Tebóin (Uppistandstebó, hljómsveitartebó ofl.)
Lélegasta stefnumál: Séð og heyrt í Cösu.
Einkunn bæklings: A-
Kjartan og Arnór eru mjög ólíkir og burt séð frá öllu því klúðri og leiðindum sem þessar kappræður voru, þá gætum við ekki haft erfiðara val fyrir höndum.
Niðurstaðan mun þó alltaf vera góð.
Þetta er bara spurning um það hvort þið viljið þennan flippaða og yndislega, en SAMT svo netta gaur... eða hvort þið viljið þennan flippaða og netta, en SAMT svo yndislega gaur.
Skiljiði?
-EH
Hver er EH?
ReplyDeleteEygló Hilmars?
ReplyDeleteÉg er ánægður með þessi blogg ykkar, umræðan er á háu stigi þegar kemur að stóru embættunum en skemmtileg og fyndin þegar farið er yfir þau minni.
ReplyDeleteVel skrifað og gott að fjallað er um framboð og stefnumál strákana því að umærðunar í dag snérust engan veginn um framboð það.
ReplyDeleteKann að meta bloggin ykkar, vel skrifuð og laus við óþarfa leiðindi eins og á síðasta ári!
ReplyDeleteKeep it up!
-EH er Eygló Hilmars.
ReplyDeleteHver er ykkar "drauma" framtíðarstjórn?
ReplyDeleteArnór eða Kjartan í forseta (veit sko ekkert hvern ég á að kjósa)
ReplyDeletePétur Björnsson
Jónas Atli...
og síðan er mér alveg sama um hina... Sissa væri kannski flott... veit ekki hvað hinir heita....
þú hefur greinilega sterkar skoðanir á þessum kosningum
ReplyDelete