Tuesday, March 27, 2012

Fjölmiðlafárið heldur áfram

Ekki vissu varðhundarnir að útvarpsstöðin Kaninn 100,5 nyti sérstakrar hylli meðal MR-inga. Þess vegna varð okkur ekki um sel í morgun þegar kosningarnar í MR höfðu allt í einu borist þangað. Eins lygilega og það hljómar var Tryggvi Skarphéðinsson, frambjóðandi til Framtíðarstjórnar, fenginn í viðtal í morgunþátt Kanans. Voddafokk?

Fyrst hljómaði viðtalið eins og einhvers konar almenn kynning á kosningunum í MR. Tryggvi talaði um kosningafyrirkomulagið, stemninguna í MR í kosningavikunni o.s.frv. En eftir því sem leið á viðtalið fór það æ meira að hljóma eins og risastór auglýsing fyrir framboð Tryggva Skarphéðinssonar. Þetta gekk svo langt að Tryggvi var hreinlega farinn að þylja upp stefnumálin sín og tala um það hvað hann gæti gert fyrir Framtíðina. Sá varðhundur sem þetta skrifar heyrði Tryggva segja nær orðrétt að mikilvægt væri að „casa sé heimilislegur og þægilegur staður til að slappa af.“ Jafnframt talaði hann um einhvern tan- og grillviðburð sem hann vill halda í Nauthólsvík næsta sumar. Erfitt er að sjá hvernig svona lagað á erindi við hlustendur Kanans.

Varðhundarnir eru hvumsa. Hvernig atvikaðist það eiginlega að Tryggvi Skarphéðinsson var fenginn í drottningarviðtal á Kananum? Af hverju á Kananum, hallærislegri útvarpsstöð sem nær enginn hlustar á? Er það eðlilegt að fjölmiðlar séu farnir að skipta sér af nemendafélagskosningum í menntaskóla? Og hvers vegna taka frambjóðendur þátt í þessum skrípaleik? Er þeim ekkert heilagt?


                   Hvers vegna var Tryggvi að tala um framboðið sitt í útvarpsviðtali?

- JPJ

2 comments:

  1. Tryggvi SkarphéðinssonMarch 27, 2012 at 5:05 AM

    Haaa? Kannast sjálfur ekkert við þetta. Frekar skrítin færsla. Væri endilega til að fá skýringu á þessu..

    ReplyDelete