Monday, March 26, 2012

Er bleikt.is málgagn Steinteins?


„Þetta myndband er nú með því metnaðarfyllra sem við höfum séð.“ Svo segja pennarnir á bleikt.is um nýjasta útspil Steinunnar Steinþórs, myndband þar sem hún valhoppar um Ingólfstorg með vinum sínum og syngur lofsöng um sjálfa sig. Hún kallar sjálfa sig „legend.“ Má það?

Það hlýtur að vekja grunsemdir þegar fjölmiðlar landsins eru farnir að hampa einu framboði til embættis í Lærða skólanum umfram önnur. Varðhundarnir velta því fyrir sér hvað búi að baki. Hefur Steinunn einhver tengsl við aðstandendur bleikt.is? Hefur hún selt Hlín Einarsdóttur sálu sína? Getur hugsast að Steinteinn ætli að ganga erinda Björns Inga Hrafnssonar, fjölmiðlakóngs, ef hún nær kjöri?

Heyrst hefur að Steinunn Steinþórs hafi byrjað að skipuleggja kosningabaráttu sína meðan hún var í móðurkviði... eða að minnsta kosti frá því að hún var í 3. bekk. Hvað segir það okkur? Er Steinunn kannski kvenkyns útgáfan af Þengli? Getur hugsast að barnastjarnan Árni Beinteinn sé aðeins peð í risastóru valdatafli? Þetta eru þær sprningar sem MR-ingar hljóta að velta fyrir sér um þessar mundir.

- JPJ

No comments:

Post a Comment