Skribuslagurinn
í ár er nokkuð spennandi, en þrír einstaklingar úr ólíkum áttum gefa kost á sér...
Arnar Sveinn Harðarson
Arnar Sveinn Harðarson
Arnar
Sveinn er úr vesturbænum. Hann var í varamaður í Morgrion liði Hagó og sat í
ritstjórn Loka Laufeyjarsonar í ár, ásamt því að vera sætur og sjarmerandi.
Auðvitað
ákvað hann að bjóða sig fram í scribuna, enda kemur hann úr Hagaskóla. Hann verður örugglega geggjað góð Scriba, a.m.k ef hann er eitthvað eins og Einar
Lövdahl (hagó, scriba, golden boy... hann er ttly eins).
Birna Ketilsdóttir
Schram
Birna
er kvenkynsútgáfan af Arnari. Hún er sæt, sjarmerandi og vinsæl, úr Hagaskóla
og var í sigurliði Morgron í 10 bekk *BLING*.
Hún var í fullt af markaðsnefndum í 3. bekk, Herranæturstjórn og MT í ár og ætti því að vera komin með ágætisreynslu af embættismannastörfum.
Þó er spurning hvort hún muni geta setið á sér með að trana sér og sínum fram í útgáfustarfseminni, en síðasta MT blað var áróðursbæklingur af guðs náð...
![]() |
Barbie & Ken of Hagó :* |
Sigrún Jonný
Óskarsdóttir
Sigrún
Jonný er þriðji framjóðandinn, endemis ólík mótframbjóðendum hennar, Barbie
& Ken of Hagaskóli.
Hún er úr Hafnarfirði, er ári eldri og var Ritstýra skólablaðsins Skinfaxa í ár, en hefur lítið verið að vaða uppi að öðru leiti.
Sumum
þykir of seint í rassinn gripið fyrir Sigrúnu að bjóða sig fram í embætti
scribu, enda verður hún ekki eftir á næsta ári til að bjóða sig fram í
Inspector (holy mother of god!)
Þó hafa einhverjar raddir hljómað um að "þroskaður og reynslumikill" einstaklingur þurfi að taka við scirbunni, þar sem næsta skólafélagsstjórn mun þurfa að takast á við erfið verkefni á næsta ári.
Hvort Sigrún sé eitthvað meira trausvekjandi en Prom Queens scholae, vegna aldurs og ritstýrureynslu hennar, er eitthvað sem hver og einn þarf að gera upp við sig.
![]() |
"Ég er sko eldri og þroskaðri..." |
-EH
afhverju hurfu bloggin hans JG?
ReplyDeleteuuu... Arnar var ekkert í Spurningakeppni grunnskólanna. Hann var að vísu varamaður í Morgron liðinu ef það gildir fyrir eitthvað...
ReplyDeleteÞú eruð örugglega að hugsa um Gunnar Arthúr, Eygló.
Deleteóþæginlega stórt letur..
ReplyDeleteArnar var vissulega ekki í spurningaliði Hagaskóla, en hann var ein af tveimur hjálparhellum Morgron liðsins (hin var Gunnar Birnir) og auk þess vann hann Viltu getta? sem var innanskólaspurningakeppni í Hagaskóla.
ReplyDeleteHaha, ó.. misskilningur.is..
ReplyDeleteég leiðrétti þetta...
Birna er alltaf að tala um hvað hún hefur mikla reynslu af útgáfustörfum. Hún hefur gefið út 2 eintök af MT. Það seinna var bara sjálfsrunk. Hún talar um að hún sé í ritstjórn Vetrar en ég sá engann Vetur innan Skólablaðsins Skinfaxa og núna á laugardaginn rennur seta hennar í embættinu út.
ReplyDeleteAf hverju myndi maður nefna það að maður sé með mikla reynslu af útgáfustarfsemi í MT og Vetur þegar Vetur hefur, og mun að öllum líkindum ekki koma út?
Ég held að flestir busar viti ekki einu sinni hvað Vetur er.
Ég ætla að kjósa Arnar.
Ég ætla að kjósa Sigrúnu.
ReplyDeleteFinnst hún mjög traustvekjandi í stefnumálum og öllu sem hún segir í bæklingnum...
Svo finnst mér líka skipta máli að hún sé eldri, það að hún sé búin að vera í skólanum heilu ári lengur en hin tvö gefur henni mikið forskot... drull um að hún geti ekki orðið inspector, það eru fullt af fleiri fottum kandídötum sem verða eftir í skólanum á næsta ári...
Hún hefur líka ekkert til að vinna að, scriban er ekki stökkpallur fyrir hana, sem þýðir að hún er bara að gera þetta því henni er annt um félagslífið. Hún fær mitt atkvæði!
DeleteVærir þú sem sagt hlynnt/ur Arnari eða Birnu ef að þau væru ekki að fara í inspector árið á eftir? (Hver veit hvort að það sé planið)
DeleteManneskja sem er að fara í inspector hlýtur að vera jafnt annt um félagslífið og scribu, ef ekki meira.
Undanfarin ár hefur Vetur komid inn í Skólabladinu en í àr àkvàdum vid ad gefa thad út sem serblad sem mun koma út í apríl. Thrátt fyrir ad kosningar seu a næsta leiti thá sitjum vid út thetta skólaár í ritstjórn Vetrar. Hvad vardar Menntaskolatidindi tha vona eg ad folki hafi fundist thad adeins innihaldrikara en sjalfsrunk.
ReplyDeleteÆtlar Birna að komast að sem Scriba án þess að nota íslenska stafi?
ReplyDeleteÉg er hræddur
Finnst allt í lagi að nefna að eina ástæðan fyrir því að við fengum kosningablaðið í ár er útaf því að Sigrún gerði samning við prentsmiðju þar sem kjörstjórn gat það ekki!
ReplyDeleteEin spæling: Hvernig ætlar Sigrún að gera Morkinskinnu almennilega á meðan hún verður á marmaris mestallan ágúst? Sama vandamál kom upp hjá Ragnheiði Björk og þá komu morkinskinnurnar alltof seint.
ReplyDeleteÞetta er mjög góð spurning.
Deletebara ef miðað er við skólablöðin sem þær gáfu út er Sigrún mun hæfari og tel ég hana klárlega geta komið henni út á réttum tíma
Deleteekki alveg það sama að miða skólablaðið og MT og lokablöð saman, hefur ekkert að segja um hæfni Birnu eða Arnars.
DeleteRagnheiður Björk skilaði líka Skólablaðinu of seint af sér, ekki bara Morkinskinnu. Auk þess er það ákvörðun hverrar scribu hvenær viðkomandi hefst handa við gerð Morkinskinnu. Þess utan hef ég aldrei gefið það út að ég ætli til Marmaris. Ég ætla og mun gefa Morkinskinnu út á réttum tíma, Marmaris eða ekki Marmaris.
DeleteÞað var enginn að miða skólablaðið við MT og Loka?
DeleteFyndið að sjá fólk tala um runk í seinasta MT blaði þegar enginn hefur minnst á Lokablöð vorannarinnar. Eitt heljarinnar runk á ritstjórn?
ReplyDeletesammála, mynd af þeim á annarri hverri síðu...
ReplyDeleteafhverju kallar enginn hana Sjonný?
ReplyDeleteÉg er alveg kölluð Sjonný af góðvinum og velunnurum :)
DeleteHelstu rökin fyrir því að scriban mætti koma líka úr 5. bekk var sú að reynsla skiptir ekki öllu máli en samt sem áður er verið að gera rosalega mikið úr reynslunni hennar Sigrúnar og draga úr reynslu Arnars og Birnu. Undarlegt...
ReplyDeleteÞað segir líka margt um þessa lagatilbreytingu að quaestors tillagan var felld en scriban samþykkt. Afhverju ætti quaestor ekki líka að geta boðið sig fram úr 5. bekk?
Það er augljóst að fólk vildi ekki breytinguna per se heldur voru þetta bara vinir Sigrúnar að styðja hana.. það er fáránlegt að breyta lögunum fyrir einhvern einn aðila. Þessu verður bara breytt aftur á næsta ári.
ReplyDeleteÞað var ekki Sigrún sem lagði fram þessa lagabreytingu, og það var ekki hún sem var í forsvari fyrir henni, þó hún hafi vissulega talað fyrir henni. Það voru lögð fram afar góð og sannfærandi rök fyrir þessari breytingu.
Deleteég er þó vissulega sammála Anonymousnum fyrir neðan mig hvað það varðar að leggja fram þessa tillögu viku fyrir kosningar.
Deleteí staðinn fékk hún Eygló,bestu vinkonu sína sem einnig skrifaði þessa færslu, til þess að tala fyrir máli hennar...
Deleteog Jón Áskel, besta vin sinn til þess að leggja breytingatillöguna fram! þetta er allt eitt stórt samsæri.
Deletesama hver setti rökin fram þá eru þau enn jafn gild. Þetta er ekki nema 800 manna skóli, það þekkjast allir.
Það var ástæða fyrir því í upphafi að fimmtu bekkingar gætu ekki boðið sig fram í scribu. Hún var sú að tryggja ákveðna breidd í Skólafélagsstjórninni. Ekki gott finnst mér að bæði inspectorinn og scriban séu í sjötta bekk.
DeleteÞað má vel vera, en að þú (ef þetta ert þá ennþá þú) sért að reyna að klína þessari tillögu á klíkuskap þykir mér fyrir neðan allar hellur, því það var ekki vegna klíkuskapar sem tillagan var samþykkt.
DeleteÞetta var alfarið klíkuskapur, ef fólk hefði verið svona hrifið af þessum rökum og fundist þetta svona góð og sniðug hugmynd þá hefði Quaestorinn líka verið samþykktur, það er frekar augljóst. Sigrún ákvað ekkert bara að bjóða sig fram eftir fundinn..
DeleteÉg og Sigrún erum, eins og einhver Anonymous bendir á hérna fyrir neðan, í mesta lagi málkunnugar og breytingartillagan sem ég lagði fram hafði ekkert með hugsanlegt framboð hennar að gera.
DeleteHún var lögð fram þegar ég fékk hugljómun á Skólafundi í kjölfarið af lagabreytingartillögum Jóns Áskels (hvers samband við Sigrúnu er að svipuðum toga og mitt, eftir því sem ég best veit).
Tillagan sem ég bar fram var þannig að Scriba og Quaestor mættu bjóða sig fram úr 4. og 5.bekk, en ég ætlaði í leiðinni að leggja til að Collegur gætu þá ekki boðið sig fram úr 5.bekk, vegna þess að það embætti er af örðum toga en Scriba og Quaestor.
Ég ákvað að fresta collegubreytingunni þar sem einhverjir væru þegar byrjaðir að skipuleggja kosningabaráttu, og það hefði verið leiðinlegt að skemma það.
Mér finnst líka FÁRÁNLEGT að quaestorstillagan hafi ekki verið samþykkt.
Ég veit ekkert um það hvort að Sigrún eða whoever hafi smalað á þennan fund, enda var það eitthvað sem kemur mér ekki við, ég smalaði að minnsta kosti ekki á þennan fund, ég gerði einfaldlega ráð fyrir að fólki þætti kannski skipta einhverju máli að kjósa um breytingar á stærstu embættum skólans, en öllum virtist vera drull, OG HANA NÚ!
I rest my case.
Ég viðurkenni fúslega að ég hafði gert upp hug minn fyrir fundinn, það væri asnalegt að halda öðru fram en ég segi það líka dagsatt að ég er 100% fylgjandi þessari lagabreytingu og myndi styðja hana hvenær sem er.
DeleteSvo ég svari fyrir þau comment sem hafa birst hér - þá smalaði ég ekki á þennan fund upp að neinu marki. Ég hefði ekki kært mig um að fara í framboð nema vitandi vits að það væri almennur stuðningur fyrir því að scribu frambjóðandi kæmi úr 5. bekk. Ég harma það einnig að fólk haldi að á baki framboði mínu sé einhvers konar langtíma plott. Ég ákvað að bjóða mig þegar sem mest gekk á við útgáfu Skólablaðsins vegna þess að ég gerði mér grein fyrir ástríða mín á almennri útgáfu er komin til að vera og vegna þess að ég sá marga hluti sem mættu fara betur.
Hvað almenna reynslu varðar og hvað snýr að rökum mínum fyrir þessari lagabreytingu þá get ég ekki lagt nógu mikla áherslu á það það er óeðlilegt að vilja ekki stokka oftar upp í stjórnum og hversu vanmetin reynsla á undirembættunum er. Þegar fólk gengur inn í kjörklefa á morgun hefur það vonandi marga hluti bakvið eyrað þegar kemur að ákvarðanatöku sinni, hvernig fólk metur reynslu eða aldur er eitthvað sem koma mun í ljós.
Es. Ég tel persónulega að ástæðan fyrir því að quaestorinn hafi ekki verið samþykktur sé einfaldlega vegna óöryggi nemenda eftir skólaárið sem er að líða.
Annars býð ég öllum góða nótt og ánægjulegan föstudag!
Heyr heyr! Reynslan skiptir líka öllu máli þegar kosið er til scribu en það er bara betra ef inspectorinn hefur enga!
ReplyDeleteÞað að breyta lögum skólafélagsins viku fyrir konsingar er algjörlega út í hött og verður til þess að allir aðrir 5. bekkingar - en sá sem bauð sig fram þar - sitja ekki við sama borð. Lögum á líka bara að breyta með hagsmuni heildarinnar í huga en ekki til að þjóna hagsmunum eins einstaklings.
ReplyDeleteFáránlega hlutdrægt! Er þetta eitthvað djók Eygló? Þó að Sigrún sé vinkona þín þá þarftu nú ekki að gera lítið úr framboðum Arnars og Birnu. Er Barbie og Ken of Hagó það eina sem þú hefur að segja um þau?
ReplyDelete"Hvort Sigrún sé eitthvað meira trausvekjandi en Prom Queens scholae, vegna aldurs og ritstýrureynslu hennar, er eitthvað sem hver og einn þarf að gera upp við sig."
Þú ert a.m.k búin að gera það upp við þig.
Hæbb.
DeleteSorry ef þér finnst þetta hlutdrægt. Ég þurfti að breyta ég greininni í kjölfarið af því að annar varðhundur gerði athugasemd við það að á að ég væri of mikið að preisa Arnar og Birnu.
Annars myndi ég nú segja að Birna sé meiri vinkona mín heldur en Sigrún, svo ég sé ekki af hverju ég ætti að vilja láta hana líta illa út frekar en einhvern annan.
Annars er þetta innihaldslítil og frekar léleg grein hjá mér, ég viðurkenni það.
Hún var aðallega gerð til þess að skapa umræður um scribuframboðin, en það tókst nú ágætlega myndi ég segja...
Heyr! heyr!
ReplyDeleteFyrir það fyrsta þekkjast Jón Áskell og Sigrún ekkert. Eygló og Sigrún eru rétt svo málkunnugar eftir því sem ég best veit. Sigrún smalaði ekki á þennan fund frekar heldur en Arnar og Birna. Varðhundarnir eru aldrei hlutdrægir. Það er fáránlegt að ætlast til þess að nemendur í skólanum sem eru með kosningarétt séu hlutdrægir, mér finnst fáránlegt að quaestors lagabreytingin hafi ekki verið samþykkt líka, það eina sem að þessar lagabreytingar leyfa eru fleiri framboð það er ekkert sem stöðvar fólk í að hafa enn sína skoðun og sannfæringu og kjósa samkvæmt því. Það besta á þessum lagabreytingafundi var hins vegar að stuðningsmenn Arnars voru yfirhöfuð sammála þessari lagabreytingu með öllu að því undanskildu að hún ætti að vera samþykkt á næsta skólaári ekki núna, það er fáránlegt. Það að fjórðubekkingar séu að reyna hér að koma einhverju óorði á annars góða kosningabaráttu Sigrúnar er alveg út í hött. Ég efast um að lagabreytingin verði færð aftur í samahorf á næsta ári því að almennt voru fundamenn sammála meira að segja Tryggvi Skarp. sem kallaði yfir fundinn að það væri fáránlegt að samþykkja þessa tillögu því þá væri gefið að fimmtubekkingurinn myndi vinna kosninguna. Málefnalegt hvað.
ReplyDeleteÉg var fylgjandi því að ræða þessa tillögu á fyrsta skólafundi næsta skólaárs, en það er aðallega vegna að þess að þá hefur enginn hagsmuna að gæta. Það var augljóst að báðir aðilar höfðu hagsmuna að gæta og sýnir það
Deletesig best með því að quaestor var felt en ekki scriba.
Þessi ummæli mín voru gríðarlega illa orðuð, haha, var svona að meina að það er erfiðara fyrir yngri bekking að fara á móti þeim eldri, en það er ekkert gefið. En ég mundi varla segja að ég hafði verið hlynntur tilögunni.
„stuðningsmenn Arnars voru yfirhöfuð sammála þessari lagabreytingu með öllu að því undanskildu að hún ætti að vera samþykkt á næsta skólaári ekki núna“ haha ekki satt
ReplyDeleteÞað er enginn að koma óorði á neina kosningabaráttu. Held ég. Bara verið að benda á ójafnræðið sem felst í því að samþykkja svona lagabreytingar viku fyrir kosningar. Það er alltof stuttur fyrirvari sem gefur einum fimmta bekkingi, Sigrúnu, meira forskot en öðrum þeim sem hefðu kannski viljað bjóða sig fram líka, því hún var búin að leggja drög að kosningabaráttunni í lengri tíma.
ReplyDeleteÉg skil ekki í þessari umræðu hvernig fólk dirfist að véfengja lýðræði svona. Lagabreytingin var samþykkt af fólki í salnum og ekki bara af Sigrúnu einni.
DeleteSérðu lýðræðið í því að koma með vini þína á fund og láta þá kjósa með þinni tillögu. Eins og bent hefur verið á hér að ofan, sést það að hlutdrægnin var mikil með því að líta á mun úrslitana í kosningum quaestors og scribu.
DeleteMinnir að Sigrún hafi sagt að hún hafi borið fram tillöguna á síðasta skólófundinum sem var haldinn
ReplyDeleteHún gerði það ekki. Minnsta málið fyrir þig ef þú ert í vafa að athuga gögn hjá núverandi scribu.
DeleteÞurfa Varðhundarnir ekki annars að loka þessari síðu á morgun vegna kosninganna? Þar sem fimmta bekkja kosningaáróðurinn veður hér uppi um alla veggi? Hver fylgist eiginlega með Varðhundunum?
ReplyDeleteMér finnst nú varðhundunum hafa tekist að vera listilega hlutlausir í ár, og ég sé ekki upp um hvaða veggi þessi "fimmta bekkja kosningaáróður" liggur.
DeleteEnda segja þeir ekki allan sannleikann og skálda sögur frekar en að tala um staðreyndir allt til þess að gæta fyllsta hlutleysis. Stundum hljómar sannleikurinn bara eins og hlutdræg umfjöllun.
DeleteVarðhundarnir í ár kjósa frekar að breyta umfjölluninni og þar af leiðandi draga hana niður á lægra plan.
Þessi breytingatillaga er út í hött, scriba og quaestor eiga að sitja í 5. bekk vegna þess hversu mikilvæg þeirra störf eru. Þeir sem gegna þessum embættum þurfa að vera í skólanum árið eftir til að geta svarað fyrir störf stjórnarinnar.
ReplyDeleteAftur á móti eiga collegur frekar að vera reynslumiklir 6. bekkingar sem geta tekið að sér hvaða verkefni sem er enda eina skilgreinda starf þeirra að skipuleggja Söngkeppnina.
Það hljóta allir að sjá mikilvægi þess að quaestor sé til staðar árið eftir enda þarf hann að svara fyrir bókhald Skólafélagsins.
Vanhugsuð tillaga hjá Eygló.
Reynsla í scribu starfið er langt frá því að vera nauðsynleg, ef þú getur ekki gefið út bók, sem allir vita hvernig á að vera og hefur verið gefin út á mjög svipuðu formi í mörg ár, á réttum tíma (eftir sumarfríið þitt) þá er eitthvað mikið að.
Útgáfa Morkinskinnu á réttum tíma er ekkert til að státa sig af, þú veist alltaf hvenær hún á að koma út...
Hahaha true
DeleteGæti ekki verið meira ósammála þessu, Sigrún hefur sannað sig sem efnilegur kandídat í scribuna, Það er með hennar aðstoð og frumkvæði sem kosningablaðið kom út. Hún hefur alltaf sýnt mikinn áhuga á skólafélagsstjorn og henni er þetta kært. Sigrún eða ekki Sigrún sem kemur í framboð úr 5.bekk þá er fáránlegt að loka á frambjóðanda sem sýnir svona einlægni í sínu framboði er fáránlegt. Þetta er mesta eindæmis bull að halda reynslunni innan stjórnarinnar og ótrúlega margir eru ósammála þessu ég er viss um það, sem sjöttu bekkingur með reynsly af félagslífinu, að "halda reynslynni" innan stjórnarinnar. Kommentið hér fyrir ofan er meira að segja í þversögn við sig.
Delete