Voddafokk? Þetta er nýja „SERVÍETTAN“ í Kakólandi. Kosningaáróður og mynd af hjartaknúsaranum Eika. Má þetta?
Kagóstragarnir, sem sjálfir sitja nú í félagsheimilisnefnd og afgreiða í Kakólandi, gefa hverjum einasta viðskiptavini svona „servíettu“ án þess að depla auga.
Þetta er augljóslega ömurlegasta servíetta í heimi. Áðan hellti ég niður Hámarks-drykknum mínum (prótein-drykknum sem er seldur í Kakólandi) og reyndi að þurrka buxurnar mínar með servíettunni, en þá kom bara blek og smá eiki í þær. Þetta er ekki servíetta fyrir fimm aura, og að því leytinu til er hagur nemenda fótum troðinn.
En það sem meira er, hér hafa kagóstragar ákveðið að misnota aðstöðu sína í Kakólandi til að auglýsa framboðið sitt. Það er siðlaust.
Svo er annað sem vekur athygli Varðhundanna:
Nú hefur Birna Ketilsdóttir aðgang að feisbúkksíðu Herranætur, ólíkt Arnari Sveini og Sigrúnu Jonnýju. Getur verið að Birna hafi ákveðið að nýta sér aðstöðu sína? Eða eru hér velviljaðar vinkonur að verki? Varðhundarnir krefjast svara.
Aðstöðubraskið og framapotið hefur náð nýjum hæðum í Lærða skólanum. Rússnesk kosning, here we come!
Uppfært kl. 12:37
Vinkonur Birnu í Herranæturstjórn vilja koma þeirri athugasemd á framfæri að þær lækuðu feisbúkksíðuna þar sem þeim þykir Birna hafa staðið sig með prýði í vetur.
JPJ / KN
Ekki má gleyma því að Hot Chit auglýsti framboð sitt á Herranætur facebookinu.
ReplyDeleteEn var tekið út nokkrum mínútum síðar.
Deletehver er KN?
ReplyDeleteKN er líklega Kristján Norland.
ReplyDeletekristján norland
ReplyDeleteÈg er bùin ad eyda thessu, afsakid ef ad thetta for fyrir brjostid a ykkur!
ReplyDeleteHver vill samt ekki hafa mynd af súkkulaðistrák eins og Eika?
ReplyDelete