Tuesday, March 27, 2012

Kjörstjórnarmeðlimum fækkar


UPPFÆRT KL. 15:18
Áðan fluttu varðhundarnir fréttir af því að Hildur Ýr hefði verið rekin úr kjörstjórn. Kjörstjórnin hefur nú bent varðhundum á að Hildur Ýr hafi ekki verið rekin heldur hafi hún ákveðið að segja af sér eftir atburði dagsins. 

---- 

Ástæðan er eflaust sú að í dag kom hlutdrægni Hildar Ýrar bersýnilega í ljós, en reglan er að kjörstjórnarmeðlimir gæti fyllsta hlutleysis í kosningunum. Hildur tók skýlausa afstöðu í kappræðum dagsins gegn Arnóri Gunnari en Hildur Ýr er, eins og alþjóð veit, ástkona Kjartans Orra. 

Hildur Ýr og fleiri vógu að Arnóri fyrir að hafa tekið þátt í Herranótt á meðan hann sat í Framtíðarstjórn. Benda má á að slíkt hið sama gerðu bæði Kristín Ólafsdóttir og Adolf Smári án þess að Kári forseti gripi í taumana.  Kjartan er eini meðstjórnandi Framtíðarinnar sem hafnaði hlutverki í Herranótt. Ýmsum sögum hefur farið af ástæðum þess, en Kjartan sagði það vera „algjört prinsippmál“ að menn einblíndu á stjórnarstörfin á meðan þeir gegndu þeim.

Arnór virtist óviðbúinn umræðum um Herranæturþátttöku sína og varð greinilega bylt við þegar þessi mál báru á góma. Meðal annars sagði hann að þátttaka stjórnarmeðlima hefði ekki haft nein áhrif á störf Framtíðarinnar eftir jól. Varðhundarnir leyfa sér að efast um að það sé rétt.

Kappræðurnar í hádeginu urðu blóðugri en margir bjuggust við. Varðhundarnir fagna því. Jafnframt mega nemendur skólans hrósa happi yfir því að kjörstjórnin er hlutlausari í dag en hún var í gær.
- JPJ


UPPFÆRT KL. 17:18
Varðhundunum barst bréf frá Nóra með rauða nefið rétt í þessu og hér verður það birt í heild sinni. Vilji Kjartan koma einhverju á framfæri munu varðhundarnir ekki hika við að birta skilaboð frá honum.

Halló. Mig langar til að benda á að ég er mjög ósáttur við það hvernig mynd er máluð af þessu Herranæturmáli öllu saman. Jújú, ég neita því ekki að mér tókst ekki að svara spurningunum í dag nægilega vel og sýni því þess vegna skilning að þið hafið fjallað um þetta í færslunni áðan eins og gert var. 

Ég áttaði mig hins vegar á því um leið og ég steig niður af sviðinu að ég hefði átt að leggja meiri áherslu á það að ég fórnaði náminu. Eftir að ég gerðist óreglulegur núna eftir áramót hef ég sótt 9 tíma á viku til þess að geta ráðið betur við þessa blöndu. Ég stend við það sem ég sagði í dag: Herranótt kom ekki á neinn hátt niður á starfi mínu í Framtíðarstjórn. Það eina sem Herranótt kom mögulega niður á er námið og varð þetta til þess að ég þarf að læra mjög mikið í apríl. 

Á álagstíma Herranætur gerði ég a.m.k. (ath: a.m.k.!) jafnmikið og þeir Framtíðarstjórnarmeðlimir sem ekki tóku þátt í Herranótt. Mér tókst að útfæra þetta mjög vel og notaði daginn (þegar margir aðrir voru í skólanum) mikið fyrir störf Framtíðarinnar. Ég eyddi ótrúlega miklum tíma í Framtíðina á sama tíma og Herranótt var í gangi og finnst þess vegna ósanngjarnt að mótframbjóðandi minn komi eitthvað betur út úr þessu máli en ég. 

Framtíðin hefur alltaf verið í fyrsta sæti hjá mér og einmitt þess var það erfið ákvörðun að taka þátt í Herranótt - ég þurfti mikið að velta því fyrir mér hvort það gengi upp að taka þátt í Herranótt ef ég vildi halda Framtíðinni í fyrsta sæti. Þess vegna ráðfærði ég mig við fólk sem hafði tekið þátt í Herranótt og verið í stjórn á sama tíma (t.a.m. Guðmund Felixson og Einar Lövdahl) og komst að þeirri niðurstöðu að það hlyti að ganga upp að hafa Framtíðina í fyrsta sæti og taka samt þátt í Herranótt - sem var hárrétt. Það kom ekki á neinn hátt niður á starfi mínu í Framtíðarstjórn - það eina sem mætti afgangi var námið (sem ég mun nota apríl í að vinna upp). 

Ég ítreka að það að taka þátt í Herranótt var ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið. En þegar á hólminn var komið kom í ljós að hún var ein sú réttasta. Enginn getur neitað því - ekki einu sinni Kjartan. 

Kv. Arnór Gunnar


23 comments:

  1. - JPJ
    Jóhann Páll Jóhannsson
    þá veit fólk það

    ReplyDelete
  2. hann er búinn að setja skammstöfunina sína aftan við fleiri greinar að neðan

    ReplyDelete
  3. Busteeeeeed (JPJ)

    ReplyDelete
  4. wat? busted? augljóslega hefur hann ákveðið að koma fram undir nafni

    ReplyDelete
  5. já sem er aðdáunarvert því að varðhundarnir hafa yfirleitt verið vetvangur fyrir ónafngreint fólk til að rakka samnemendur sína niður og varðhundar hafa ekki þurft að taka neinum afleiðingum. Það er gott að vita að Jóhann Páll er tilbúinn til að taka afleiðingunum.

    ReplyDelete
  6. Það er skemmtilegt að anonymousar hafi litið á skammstöfunina mína sem einhverja gátu sem spæjarar skólans gætu leyst. En ég ætla að koma fram undir nafni og hef sett skammstöfunina mína undir þær þrjár greinar sem ég hef skrifað hér á síðunni.

    ReplyDelete
  7. Það er enginn að segja að Arnór hafi bara verið að chilla í Herranótt. Það er bara verið að segja að þetta hafi haft einhver áhrif á störf framtíðarinnar. Það er alveg réttlætanlegt að benda á það í þessari kosningabaráttu, þar sem að Kjartan ákvað að vera ekki með.
    Fleiri hlutir en kærustur geta haft áhrif á hvaða ákvarðanir menn taka. Frekar asnalegt að setja þetta upp svona. Seinast þegar ég vissi þá var Kjartan maður, ekki mús.

    ReplyDelete
  8. "Hildur Ýr hafi ekki verið rekin heldur hafi hún ákveðið að segja af sér eftir atburði dagsins"..Jájá, segjum það bara.

    ReplyDelete
  9. Mér finnst afar hallærislegt að það sé fólk í 5. bekk sem sé í varðhundunum, það hefur augljóslega einhverra hagsmuna að gæta... Mér þykir eðlilegra að það séu 6. bekkingar sem að hafa engu að tapa. Bloggin hjá Jóhanni Páli eru líka miklu áhugaverðari en hin...

    ReplyDelete
  10. "Mér finnst afar hallærislegt að það sé fólk í 5. bekk sem sé í varðhundunum, það hefur augljóslega einhverra hagsmuna að gæta..."

    Úff.

    ReplyDelete
  11. ég hef engra fokking hagsmuna að gæta sjomli. Hver heldurðu að þú sért?!
    Kv. Lóa

    ReplyDelete
    Replies
    1. það hefur aldrei tíðkast að fólk í 6. bekk sé í varðhundunum svo ég viti og mér finnst það bara gera færslurnar ykkar ómerkilegri...

      Delete
  12. Ég ætla að kjósa Arnór, ekki spurning.

    ReplyDelete
  13. Mig langar að vita hvað fólk hefur svona mikið út á störf Framtíðarinnar að setja þetta skólaárið. Í dag var eins og allir væri brjálaðir en ekki vegna neins sérstaks. Framtíðin þurfti að vinna sig upp úr mikilli skuld og fór vinna þeirra mikið í það en á sama tíma stóðu þau skil á flestu sem þau lofuðu og gerðu það að mínu mati vel. Nokkur tebó voru illa auglýst og fáir mættu, það hefur verið svoleiðis öll mín skólaár. Þau héldu samt tebó næstum hverja helgi.

    Ég var á móti því að krakkarnir færu í Herranótt eftir að hafa verið kosin í Framtíðarstjórn af nemendum sem treystu þeim en ég tel að það hafi ekki með nokkru móti komið niður á Framtíðinni. Kannski kom það niður á verkskipullagi og álagi á forseta og Kjartan, en Kári má ekki tjá sig um það og Kjartan mun ábyggilega ekki gera það. Mér finnst Framtíðin amk hafa staðið sig prýðilega.

    Ég held að Arnór hafi verið alveg jafnvirkur og hinir í stjórninni, allir viðburðirnir og skemmtilegheitin koma ekki frá vinnu tveggja aðila. Það þarf fleiri til. Það eina sem ég sá af Arnóri þetta skólaár var áhugi og dugnaður og ég trúi því að hann hafi lagt mikið meira á sig en flest okkar grunar til að Framtíðin hafi verið svona flott.

    Já, Arnór er vinur minn, svo það gerir kannski lítið úr þessum pælingum, en á sama tíma þá er Kjartan líka vinur minn og ég er handviss um að hann hafi líka skilað miklu til Framtíðarinnar.
    Mér finnst bara óþarflega að Arnóri vegið.

    ReplyDelete
  14. Ég ætla að kjósa Kjartan, ekki spurning.

    ReplyDelete
  15. Ragnheiður FreyjaMarch 27, 2012 at 2:13 PM

    Það er alveg rétt, það er óþarflega að Arnóri vegið og eins og hann tók fram í dag þá missti hann einungis af tveimur kvöld viðburðum vegna veru sinnar í Herranótt. That's it, tveimur kvöldviðburðum. Í árshátíðarvikunni mætti hann eftir æfingar í skreytó og vann þar alla nóttina rétt eins og hinir. Kjartan talaði um að honum fyndist rangt að setja eitthvað annað í fyrsta sæti þegar nemendur hafa kosið þig í stjórn en hver segir að Arnóri hafi þurft að setja Herranótt í fyrsta sæti? Ég held að störf hans í vetur sanni einmitt bara að það er hægt að vera í Herranótt en hafa samt annað í fyrsta sæti. Með skipulagi er alveg hægt að eiga sér líf utan Herranætur, álagið er ekki svo mikið.

    ReplyDelete
  16. Af hverju ætti Kári ekki mega tala um mál Framtíðarinnar þótt hann sé í kjörstjórn? Hann má ekki auglýsa stuðning við neinn frambjóðanda opinberlega en hann má alveg tala um mál Framtíðarinnar - annað væri fáránlegt.

    ReplyDelete
  17. Ég hef það frá Kára að Arnór hafi unnið jafn hart og ef ekki harðar að sér en þeir Kjartan í árshátíðarvikunni þrátt fyrir að vera í Herranótt. Og hana nú!

    Ég ætla að kjósa Arnór, ekki spurning.

    ReplyDelete
    Replies
    1. Ég hef það frá Kára og öðrum stjórnarmeðlimum að eftir árámót hafi verið mjög erfitt hjá Framtíðinni að ná saman höndum og gera það sem þau vildu gera. Mikill partur af því var útaf því að meirihluti stjórnarinnar var í herranótt. Þó svo að Arnór hafi gert ýmislegt hefði hann getað gert svo miklu meira og gert hlutina þá miklu betri ef hann hefði ekki eytt svona miklum tíma í herranótt.

      Delete
  18. ÁFRAM ARNÓR
    ARNÓR Í FORSETA
    ARNÓR Í FORSETA
    ARNÓR Í FORSETA
    ARNÓR Í FORSETA
    !!!!!!!!!!!!

    ReplyDelete
  19. Djöfull eruð þið asnaleg, ég var besti Inspectorinn. Hörn á ekki minnsta roð í mig. NÝGRÆÐINGUR!!!!!!

    ReplyDelete
  20. Áfram Arnór ?
    Kjartan var eini maðurinn sem sinnti þessu embætti 100%. Á meðan var restin annað hvort í herranótt eða í morfís. Ég ætla að kjósa einhvern sem hægt er að treysta og það er Kjartan, ekki spurning.

    ReplyDelete
  21. Ég efast um að þetta sé rétt hjá þér.
    Störf stjórnarembætta fara fram að lang mestu leiti fyrir kl. 17. (áður en Herranæturæfingar byrja) Kvöldatburðir eru ein af fáum undantekningum og Arnór tók það fram að hann hefði misst af mjög fáum kvöldatburðum.
    Fyrir utan það þá var hann óreglulegur og gat líklega notað skólatímann meira en þeir sem voru það ekki. Ég hef allavega heyrt frá stjórnarmeðlimum og samstarfsmönnum þeirra að hann hafi gert jafn mikið ef ekki meira en hinir. Ég held a.m.k. að það sé hægt að sinna embættinu 100% þótt maður taki önnur verkefni að sér.

    ReplyDelete