Sunday, March 25, 2012

Stóra planið 2012?


Það muna eflaust flestir eftir „Stóra planinu 2010", þegar Albert Guðmundsson ætlaði að vera forseti Framtíðarinnar, Þengill quaestor, Sigurður Helgi collega o.s.fr. Planið mistókst þó hrapalega.  

Með þetta til hliðsjónar er áhugavert að skoða frambjóðendur í Skólafélagsstjórn árið 2012:


Inspector Scholae

Hörn, scriba, Heiðarsdóttir gefur kost á sér í embætti Inspectors Scholae, en hún hefur lítið annað gert en að undirbúa sig fyrir embættið síðan hún steig fyrst fæti í MR. Eins og sönnum framapotara sæmir byrjaði hún á Skólablaðinu og stóð sig ágætlega sem ritstýra þess. Í ár sat hún svo í verstu skólafélagsstjórn frá upphafi vega en telur sig þó vera þess fallin að stjórna félagslífinu á næsta ári.

- Hörn er kærasta Alberts Guðmundssonar.

Sæt saman

Quaestor Scholae

Sólveig Ásta Einarsdóttir er sjarmerandi stúlka með bein í nefinu, efnilegur ræðuskörungur og ein af ritstýrum Menntaskólatíðinda á vorönn 2012. Hún er sú eina sem gefur kost á sér í embætti gjaldkera Skólafélagsins árið 2012. Maður spyr sig eflaust hvort að það sé ekki bara gott og blessað að hún sé sjálfkjörin, enda er Sólveig „mjög hæf" að mati vinkvenna hennar. Varðhundar setja þó spurningamerki við hæfni 17 ára barns til þess að fara með milljónirnar sem Skólafélagið veltur ár hvert.

- Sólveig Ásta er kærasta Sigurðar Helga Birgissonar og besta vinkona Harnar. 

Scriba Scholaris

Birna Ketilsdóttir Scham kom fljúgandi inn í MR eins og fagurt fiðrildi og heillaði alla upp úr skónum með útgeislun sinni og afslöppuðum persónuleika :)
Skólaganga hennar hefur verið draumi líkust, enda hún hóf feril sinn í Herranætursýningunni Draumi á Jónsmessunót og sat svo (skv. embættismannatalinu í Morkinskinnu) í Herranæturstjórn á þessu ári. Á sama tíma sat hún í ritstjórn Menntaskólatíðinda með bestu vinkonu sinni Sólveigu Ástu, en þess má einnig geta að þær vinkonurnar hófu kosningabaráttu sína á ansi ódýran hátt með „leyndum" kosningaáróðri í síðasta tölublaði.

- Birna er fyrrverandi kærasta Þengils Björnssonar og besta vinkona Sólveigar Ástu og Harnar.  

Þær eru grimmar, vinkonurnar 
Já, það lítur svo sannarlega út fyrir að fyrrum „Konungar" Menntaskólans í Reykjavík þrái að upplifa brostna drauma í gegnum drottningarnar í lífi sínu.

Varðhundar trúa að minnsta kosti ekki á tilviljanir.


-EH

No comments:

Post a Comment