Saturday, March 31, 2012

Um Sigurð Árna Þórðarson


Maðurinn

Jákvæðni, áhugi, hlýja og nánd eru áberandi persónueinkenni Sigurðar Árna. Hann er yfirvegaður, þægilegur í samskiptum og á auðvelt með að tengjast fólki. Góður hlustandi, hefur áhuga á fólki, líðan þess og skoðunum. Hann sér styrkleika náungans, hrósar, styður og lyftir upp samstarfsfólki sem og öðrum þeim sem hann mætir í daglega lífinu.
Sigurður Árni er hamingjumaður í einkalífi en kona hans er Elín Sigrún Jónsdóttir, lögræðingur. Hann á fimm börn á aldrinum 6-27 ára, þrjú barna hans eru af fyrra hjónabandi þau Katla, Saga og Þórður. Börn Sigurðar Árna og Elínar eru síðan tvíburarnir Jón Kristján og Ísak. Þetta mikla barnalán Sigurðar tengir hann vel við ungt fólk og veitir honum innsýn í menningu þess. Hann ræktar fólkið sitt, er mikill fjölskyldumaður og hafa þau Elín búið sér hlýlegt og fallegt heimili í vesturbæ Reykjavíkur. Garðrækt er eitt af áhugamálum Sigurðar og hefur hann lagt mikla vinnu í ræktun garðsins þar sem hann ræktar sitt eigið grænmeti. Á síðustu árum hefur skógrækt einnig verið Sigurði Árna hugleikin og hefur hann meðal annars ræktað ávaxtatré sem nú þegar hafa borið ávöxt.

Leiðtoginn

Sigurður Árni hefur unnið með veikleika sína og styrkleika og gerir sér grein fyrir því hvar þeir liggja. Hann á auðvelt að vinna með fólki og þjóna öðrum, er djúpsær leiðtogi og þorir að skoða nýjar leiðir sem þjóna markmiðum trúar og kirkju. Hann er opinn, lausnamiðaður og íhugull framkvæmdamaður. Sigurður Árni er atorkusamur, lætur verkin tala og þorir að taka á þeim málum sem upp koma hverju sinni.

Presturinn

Sigurður Árni er góður prédikari, snjall ritskýrandi og samtímamiðaður í ræðum sínum. Hann er ötull við að birta prédikanir sínar á vefnum og eru þær að jafnaði mikið lesnar. Prédikanir Sigurðar Árna má finna á vefsíðunum www.tru.is ogsigurdurarni.annall.is.
Sigurður Árni er góður söngmaður og vill að helgiþjónusta messunnar sé fögur, einlæg og aðgengileg. Hann er góður sálusorgari og umhyggjusamur í hinum persónulegu þáttum prestsþjónustunnar. Hann hefur áhuga á að efla samfélag og samskipti fólks og ósjaldan má sjá Sigurði Árna bregða fyrir í eldhúsi kirkjunnar þar sem hann töfrar fram ljúffengar máltíðir og stendur fyrir borðsamfélagi í kirkjunni.

Námsmaðurinn og fræðimaðurinn

Sigurður Árni er vel lesinn guðfræðingur. Hann lauk kandídatsprófi frá guðfræðideild Háskóla Íslands árið 1979 með ágætiseinkunn 9,10 sem er ein hæsta einkunn sem gefin hefur verið í guðfræðinámi við HÍ. Eftir að hafa lokið kandítatspróf lá leið hans í framhaldsnám til Bandaríkjanna og lauk hann doktorsprófi árið 1989. Sérsvið Sigurðar Árna er trúfræði og hugmyndasaga síðustu alda. Doktorsritgerð hans var um myndmál í íslenskri guðfræði og verður hún endurútgefin af alþjóðlega bókaforlaginu Peter Lang í febrúar 2012. Fræðimennska Sigurðar Árna mun nýtast honum vel í biskupsstarfi vegna þess hve samtímamiðuð hún er. Hann hefur skrifað mikið um málefni trúar og kirkju og er fastur pistlahöfundur í Fréttablaðinu.

Starfsmaðurinn

Sigurður Árni er bæði landsbyggðarmaður og borgarbarn. Hann hefur þjónað sem prestur í dreifbýli og þéttbýli, í Vestur-Skaftafellssýslu, S-Þingeyjarsýslu, Árnessýslu og Reykjavík, verið fræðari og rektor Skálholtsskóla og starfað sem verkefnisstjóri á biskupsstofu. Hann breytti lýðháskólanum í Skálholti í menningarmiðstöð og lagði grunn að flestum þeim starfsþáttum sem Skálholt er þekkt fyrir, s.s. kyrrðardaga, ráðstefnur og námskeið. Einnig beitti hann sér fyrir nýjum fræðsluháttum hjá þjóðgarðinum á Þingvöllum þar sem enn í dag er byggt á þeirri skipan sem hann kom á. Sigurður Árni kom með tillögur að safnaðaruppbyggingu þjóðkirkjunnar og vann síðar að henni á vegum biskups Íslands. Í prestsstörfum í Hallgrímskirkju og Neskirkju hefur Sigurður beitt sér fyrir eflingu innra starfs safnaðanna, aukinni virkni og fjölbreytni í starfi. Sigurður Árni var valinn á kirkjuþing 2010 og hlaut hann flest atkvæði presta, hann er varamaður í kirkjuráði og formaður framtíðarnefndar kirkjuþings.

Thursday, March 29, 2012

Stefnubreyting hjá varðhundunum

Senn verður gengið til kosninga í Lærða skólanum og ætla því varðhundarnir að snúa sér að öðrum málum. Héðan í frá verður einungis fjallað um biskupskjörið á varðhundasíðunni. Hér að neðan má sjá líflegar umræður frá kynningarfundi biskupsframbjóðenda í safnaðarheimili Háteigskirkju.



Varðhundarnir þakka samfylgdina og óska MR-ingum gleðilegra kosninga.

Scribuframbjóðendur


Skribuslagurinn í ár er nokkuð spennandi, en þrír einstaklingar úr ólíkum áttum gefa kost á sér...

Arnar Sveinn Harðarson

Arnar Sveinn er úr vesturbænum. Hann var í varamaður í Morgrion liði Hagó og sat í ritstjórn Loka Laufeyjarsonar í ár, ásamt því að vera sætur og sjarmerandi.

Auðvitað ákvað hann að bjóða sig fram í scribuna, enda kemur hann úr Hagaskóla. Hann verður örugglega geggjað góð Scriba, a.m.k ef hann er eitthvað eins og Einar Lövdahl (hagó, scriba, golden boy... hann er ttly eins).

Birna Ketilsdóttir Schram

Birna er kvenkynsútgáfan af Arnari. Hún er sæt, sjarmerandi og vinsæl, úr Hagaskóla og var í sigurliði Morgron í 10 bekk *BLING*.

Hún var í fullt af markaðsnefndum í 3. bekk, Herranæturstjórn og MT í ár og ætti því að vera komin með ágætisreynslu af embættismannastörfum.
Þó er spurning hvort hún muni geta setið á sér með að trana sér og sínum fram í útgáfustarfseminni, en síðasta MT blað var áróðursbæklingur af guðs náð...


Barbie & Ken of Hagó :*


Sigrún Jonný Óskarsdóttir

Sigrún Jonný er þriðji framjóðandinn, endemis ólík mótframbjóðendum hennar, Barbie & Ken of Hagaskóli.

Hún er úr Hafnarfirði, er ári eldri og var Ritstýra skólablaðsins Skinfaxa í ár, en hefur lítið verið að vaða uppi að öðru leiti.

Sumum þykir of seint í rassinn gripið fyrir Sigrúnu að bjóða sig fram í embætti scribu, enda verður hún ekki eftir á næsta ári til að bjóða sig fram í Inspector (holy mother of god!)

Þó hafa einhverjar raddir hljómað um að "þroskaður og reynslumikill" einstaklingur þurfi að taka við scirbunni, þar sem næsta skólafélagsstjórn mun þurfa að takast á við erfið verkefni á næsta ári.



Hvort Sigrún sé eitthvað meira trausvekjandi en Prom Queens scholae, vegna aldurs og ritstýrureynslu hennar, er eitthvað sem hver og einn þarf að gera upp við sig.


"Ég er sko eldri og þroskaðri..."


-EH

Bossi í kösu ?!?!



Guli rassinn lét sjá sig


Það var margt um manninn í kösu í dag og frambjóðendur nýttu seinasta tækifærið til að sleikja rassa.



Siðleysi frambjóðenda



Voddafokk? Þetta er nýja „SERVÍETTAN“ í Kakólandi. Kosningaáróður og mynd af hjartaknúsaranum Eika. Má þetta?

Kagóstragarnir, sem sjálfir sitja nú í félagsheimilisnefnd og afgreiða í Kakólandi, gefa hverjum einasta viðskiptavini svona „servíettu“ án þess að depla auga.

Þetta er augljóslega ömurlegasta servíetta í heimi. Áðan hellti ég niður Hámarks-drykknum mínum (prótein-drykknum sem er seldur í Kakólandi) og reyndi að þurrka buxurnar mínar með servíettunni, en þá kom bara blek og smá eiki í þær. Þetta er ekki servíetta fyrir fimm aura, og að því leytinu til er hagur nemenda fótum troðinn.

En það sem meira er, hér hafa kagóstragar ákveðið að misnota aðstöðu sína í Kakólandi til að auglýsa framboðið sitt. Það er siðlaust.

Svo er annað sem vekur athygli Varðhundanna:



Nú hefur Birna Ketilsdóttir aðgang að feisbúkksíðu Herranætur, ólíkt Arnari Sveini og Sigrúnu Jonnýju. Getur verið að Birna hafi ákveðið að nýta sér aðstöðu sína? Eða eru hér velviljaðar vinkonur að verki? Varðhundarnir krefjast svara.

Aðstöðubraskið og framapotið hefur náð nýjum hæðum í Lærða skólanum. Rússnesk kosning, here we come!

Uppfært kl. 12:37
Vinkonur Birnu í Herranæturstjórn vilja koma þeirri athugasemd á framfæri að þær lækuðu feisbúkksíðuna þar sem þeim þykir Birna hafa staðið sig með prýði í vetur.

JPJ / KN

Hefðablætið


MR-ingar eru með hefðablæti, og þá skiptir engu máli hversu asnalegar hefðirnar eru. Það þykir ekki fínt að mæla gegn þeim, því hefðirnar eru svo stór hluti af konseptinu Emmerr. 

Árshátíðarskreytingarnar eru ein þessara hefða. Þessi er reyndar tiltölulega ung, en hún er samt orðin svo rótgróin að MR-ingar líta á hana sem sjálfsagðan hlut. 

Hefðin lýsir sér einhvern veginn svona: Tvisvar sinnum á ári er kösukjallara umbreytt í wannabe-disneyland. Til þess verja nemendafélögin gríðarlegum fjármunum. Kostnaður skreytinganna, fyrir Framtíðina og Skólafélagið til samans, nemur oftast meira en hálfri milljón. Fyrir þá upphæð mætti til dæmis halda risastóran viðburð, lækka miðaverð á böll, reisa skóla í Afríku að hætti verslinga eða jafnvel leigja þyrlu og láta peningum rigna yfir MR.  

En hey, MR er skóli hefðanna. Er það ekki? En hvað finnst dauðu trjánum sem er slengt upp á veggi kösukjallarans á ári hverju um þessa hefð? Hvaða áhrif ætli hefðin hafi á reksturinn hjá Kakólandsdrottningunum? Ég veit það ekki. Allavega finnst mér ógeðslega pirrandi þegar Kakóland er lokað og ég get ekki fengið mér ábót á kaffið mitt.

Kannski er ég bara fýlupoki. Kannski finnst öllum algjör snilld að kasa sé skötulíkisdisneyland í átta daga á ári. Kannski finnst öllum bara flábælt að 600-700 þúsund krónur renni úr sameiginlegum sjóðum nemenda í svona föndur. En mér finnst þetta asnaleg hefð. Bruðlhefð. Ég vona að hún deyi.
- JPJ

Wednesday, March 28, 2012

Bingóframboð biður Öddu Guðrúnu afsökunar

Margir hafa eflaust rekist á kosningamyndband Bingóstragana þar sem lagið All the Small things (Blink 182) er sett í nýjan búning. Þar gert er grín að ýmsum þáttum úr félagslífinu í MR, m.a. er Nils, hotboy, Nowenstein snilldarlega leikinn af Árna Þóri Lárussyni. Myndbandið er nokkuð fyndið og skemmtilegt, en eitt atriði stakk þó varðhunda.

Í upphafi myndbandsins birtist ansi graffískt myndefni af Magga Sig og Óttari Kagóstrág (sem var með Jessy Jay hárkollu á höfðinu) í doggy-style sessjóni í lyftunni í Casa Nova, á meðan klausan "Dungal, og Adda eru með lyftupassa" var sungin af Eiríki Ársæls.


Þau Adda Guðrún Gylfadóttir, 3.A og Hrafn Dungal (MH) voru að slá sér upp snemma á haustönn, en sá orðrómur um að þau hefðu notið ásta í lyftunni í Casa Nova breyddist um skólann eins og eldur í sinu fyrir jól. Orðrómurinn spratt upp úr einhverskonar grínsamræðum í Cösu, en fólk virðist hafa tekið því alvarlega, vegna þess að fólk talaði eins og það hefðu óbilandi sannannir fyrir þessu.


Varðhundum þótti athæfi Bingóstraga afar ósmekklegt, hvort sem orðrómurinn hafi verið sannur eður ei, enda er myndbandið niðurlægjandi fyrir stúlkuna á óteljandi levelum. Þar að auki er hún nafngreind.
Strákarnir kunna þó að skammast sín, ritskoðuðu klippuna út úr vídjóinu og barst varðhundum formleg opinber afsökunarbeðni til Öddu sem þeir vildu koma á framfæri:


"Í öllu því óðagoti sem fylgir kosningavikunni varð okkur strögunum illilega á er við gerðum kosningamyndband okkar. Við viljum biðja Öddu Guðrúnu innilegrar afsökunar á að hafa nýtt okkur svívirðilegan orðróm, um fjarstæðukenndan atburð sem hún tók engan þátt í, við myndbandsgerð okkar. Ætlunin var aldrei að særa hana eða nokkurn annan með þessu myndbandi og er það okkar von að allir skilji sáttir.


Kveðja, Stragarnir"


Þrátt fyrir allt ákvað Adda að hefja sig yfir athæfi stragana og kæra það ekki til skólayfirvalda, en ef hefði hún gert það hefðu Bingoströgunum líklega verið vísað úr framboði.


Adda Guðrún og dog vona innilega að stragarnir hafi lært af mistökum sínum og aðgát verði höfð í nærveru sálar, nái þeir kjöri (og í lífinu almennt).
- EH

Af inspectorsframbjóðendum...

Í nokkurn tíma var útlit fyrir að Hörn Heiðarsdóttir núverandi scriba, yrði sjálfkjörin í embætti Inspectors. Varla þarf að benda á að Hörn var sjálfkjörin í scribuna. Hún var auk þess sjálfkjörin í Skólablaðið Skinfaxa (stökkpallinn í scribuna) sem hún ritstýrði. Ástæðuna fyrir því að þessar aðstæður virðast sífellt koma upp hjá Hörn tel ég ekki vera tilviljun, og ekki heldur þá að lítill áhugi sé hjá nemendum til að gegna þessum embættum. Sem dæmi buðu sig 8 manns (að mig minnir) fram til collegu í fyrra. Svo að greinilega er áhugi á þessum embættum (geri mér fyllilega grein fyrir því að embættin eru af ólíkum toga). Er það vegna þess að fólk er hrætt við Hörn? Það þori ekki í Hörn? Maður hefur nú heyrt pískrað á göngunum "Hörn er hæfust" og "Enginn þorir í Hörn" eða "Hörn hefur mestu reynsluna."
Gott og vel, gefum okkur að þetta allt sé rétt.

Mörgum að óvörum gaf Jón Sigurður Gunnarsson, betur þekktur sem "Nonni Litli" ( Litli, vegna þess að hann er lágvaxinn), kost á sér í Inspector. Mörgum þótti það jákvætt, þó aðallega Hörn, sem fannst frábært að vera ekki sjálfkjörin. Nonni hefur vissulega "reynslu" af félagslífinu, en hún fittar ekki alveg inn í þessa "steríótýpísku-embættismanna-reynslu" sem er það sem gefur atkvæði þessa dagana.

Stefnumálin hennar Harnar einkennast af reynslunni. Hörn er realistic og Nonni er soldið úti á þekju.
Þetta er soldið eins og að reyna að kjósa á milli McGonagall og... Ron eða eitthvað. 

Þessi kosningabarátta um inspectorinn er búin að vera þurrari en Góbí eyðimörkin... Voðalega óspennandi allt saman og lítið um drama (sem að dog þykir mikill ókostur) Ég vil fá show. Stelpur að grenja og soleis...

Nonni litli fær lof fyrir að þora í Hörn, það er aðdáunarvert. En ég held að miðað við reynslurúnkið í MR þá séu ekki miklar líkur á því að einhver sem kemur úr stjórn muni tapa fyrir einhverjum sem gerir það ekki. Svo stóð Hörn sig líka bara tussuvel í stjórn og hefur ráð undir hverju rifi. Hún á nebbla svona blóraböggul til að kenna um allt sem fór úrskeiðis ( hann er víst ekki í MR lengur sko)

Sorry Nonni, smá tips, maður gerir sko: Skólablaðið- Scriba - Inspector. Ekki: Blóraböggull- Íþróttaráð- Inspector Platearum - Bingó - Inspector.


"Ég er ekki Þengill"


"ég skutla 95 módelum á kjörstað í skiptum fyrir eitt lítið atvkæði"


Tuesday, March 27, 2012

Fortíð, nútíð og framtíð Framtíðarinnar

Stjórn Framtíðarinnar hefur staðið sig ágætlega í ár, en þeim hefur tekist að draga Framtíðina upp úr þvílíku skuldafeni. Félagið skuldaði u.þ.b tvær milljónir þegar núverandi stjórn tók við af stjórn síðasta árs, en mun líklega skila félaginu skuldlausu í hendur næstu stjórnar. Bravó.


Á vorönn skráðu 83% nemenda sig í Framtíðina. Félagið hélt frábærar Megavikur og Tebó og MR-ví heppnaðist vel (þrátt fyrir tap). Eftir jól tóku svo stærstu verkefnin við, en þrátt fyrir það ákváðu þrír af fimm meðlimum framtíðarinnar að taka þátt í leikhópi Herranætur. Árshátíðin heppnaðist ágætlega og skreytingarnar voru skemmtilegar en dagskrá vikunnar var þó af að skornum skammti. Framtíðin hélt svo Megaviku sem var ekkert svo "mega" og tebóin eftir jól voru ekki uppá marga fiska. Útgáfan var til fyrirmyndar (fyrir utan pínku ponsu smá siðlaust fyrsta lokablað) og Sólbjartur hélt þó ótrauður áfram og eru nú aðeins undanúrslit og úrslitakeppnin sjálf eftir. Grímuballið var svo mjög vel heppnað.


Þess má geta að forsetaefni Framtíðarinnar koma báðir úr Framtíðarstjórn, þeir Nóri Gun og Kjarri Strange. Í dag fóru fram dramatískar kappræður milli þeirra í Cösu og er því viðeigandi að fjalla um þá í kjölfarið af þeim.

Arnór Gunnar Gunnarsson

Arnór hefur verið áberandi frá því að hann steig fyrst fæti í MR. Hann hefur eytt miklum tíma og kröftum í félagslífið, en hann var í ritstjórn Loka Laufeyjarsonar og Myndbandanefnd Framtíðarinnar í 4.bekk ásamt því að vera tíður gestur í Bingóþáttum þess vetrar.  Hann hefur einnig verið áberandi í ræðumennsku, slegið í gegn í Sólbjarti og stofnað leikfélag Framtíðarinnar, Frúardag.
Í ár sat hann svo í stjórn Framtíðarinnar og hefur staðið sig eins og hetja. Þó þykir það einhverjum það vera svartur blettur á stjórnarsetu Arnórs að hann hafi tekið þátt í ,„Herranætursamsærinu" ásamt tveimur öðrum stjórnarmeðlimum Framtíðarinnar. Arnór gerði þó ýmislegt til þess að bæta upp fyrir þetta, en hann skráði sig í óreglulegt nám til þess að getað unnið að undirbúning Árshátíðarinnar, sem er vitaskuld stærsta verkefni Framtíðarstjórnar.

Í kappræðunum í dag Arnór steig öruggur á svið og flutti stefnumál sín af öryggi og ákefð, en hann virtist brotinn maður þegar hann gekk af sviðinu. Þegar undirritaður dog bar upp spurningu varðandi það hvaða áhrif Herranæturþátttaka hans og annarra stjórnarmeðlima hafði á störf Framtíðarinnar, svaraði hann að það hafi ekki komið neitt að sök. Þessi umræða kveikti eld í fundargestum og risu nokkrir einstaklingar upp og beinlínis rökkuðu Arnór niður (svolítið eins og hann einn bæri ábyrgð á lélegum tebóum og megavikum). Umræðurnar fóru niður á lægra plan en dog telur skynsamlegt. Spurningin hafði þó vissulega rétt á sér, enda er ekkert eðlilegt við það að meirihluti framtíðarstjórnar skuldbindi sig í verkefni af stærðargráðu á borð við Herranótt.

Arnór ætlar sér stóra hluti sem Forseti, en hann lofar hverjum nýjum viðburðinum á fætur annars og á fundinum í dag sagðist hann telja það vera meira en gerlegt að standa við þessi loforð ásamt því að sinna almennum skildum Framtíðarinnar af kostgæfni.

Bæklingurinn hans er flottur og ekkert út á hann að setja, fyrir utan það að það er svo mikið í honum að maður nennir varla að lesa það allt, sem gæti þó líka talist sem kostur, enda er hann er stútfullur af nýjum OG gömlum hugmyndum. Allt er þetta þaulhugsað og vel útskýrt. Hann fær meðmæli úr öllum áttum (meira að segja frá Paragvæ) og þar á meðal frá mótframbjóðanda hans, Kjartani, sem undirrituðum dog finnst voða sætt.

Eftirlætisstefnumál: Selsferðir
Lélagasta stefnumál: Málfundir um fótbolta

Einkunn bæklings: A-

Kjartan Orri Þórsson 

Kjartan Orri er, líkt og Arnór Gunnar, félagsmálatröll af guðs náð. Hann hefur (aftur, eins og Arnór) eytt miklum tíma og kröftum í félagslífið, en í fyrra tók hann þátt í Herranótt og ritstýrði Loka Laufeyjarsyni eftir jól. Í ár sat hann svo í stjórn Framtíðarinnar sem meðstjórnandi og umsjónarmaður Sólbjarts. Hann hefur líka verið áberandi í tónlistarlífinu, en hann er í MR kórnum, tók þátt í söngkeppninni í fyrra og er söngvarinn í 80's dúóinu Joe and the Dragon. Auk þess var hann frumkvöðull 80's hljómsveitarinnar sem spilaði á hinu goðsagnakennda 80's tebói fyrir áramót (Kjartan er eitthvað 80's legend).
Á sama tíma og hann hefur verið að vaða uppi í MR hefur hann líka verið að vinna í félagsstarfi utan veggja skólans, en hann er m.a. einn af frumkvöðlum ungmennahússins "Íbúðarinnar" sem stofnað var í laugardalnum í sumar.

Kjatan var sprækur sem lækur þegar hann flutti mál sitt í dag og virtist vera í stuði með guði.
Kjartan tók ekki þátt í Herrnætursamsærinu mikla þrátt fyrir að komast inn í leikhópinn. Hann varð ekki fyrir jafn miklu aðkasti og Arnór í dag, en komst þó ekki undan verjendum Arnórs, sem létu svolítið eins og Kjartan bæri sök á því að Arnór hafi verið rakkaður niður (reyndar kom það ekki nógu vel út þegar Hildur Ýr gat ekki setið á sér þegar Arnór sat fyrir svörum og sagði það óvirðingu við gagnvart þeim kusu hann að hafa skuldbundið sig í Herranótt (aftur, athugasemd sem átti hugsanlega rétt á sér, en það hefði, eðlilega, komið sér betur fyrir Kjartan ef hún hefði komið úr annarri átt)).

Þegar Kjartan var svo spurður út í það hvernig hann myndi tækla sambærilegar aðstæður sem forseti sagði hann það vera „prinsipp mál" fyrir honum að þeir aðillar sem kosnir eru í stjórn einbeiti sér að þeim verkefnum sem þeim hefur verið treyst fyrir. 
Þar höfum við það.

Kjartan og Arnór eru með nokkuð ólíkar stefnur. Arnór leggur áherslu á nýjar hugmyndir, á meðan Kjartan virðist vilja leggja meiri áherslu á að gera þeim Framtíðarviðburðum sem er nú þegar hefð fyrir betri skil, þ.e. „ráðast að rótum Framtíðarinnar". Hann tekur þó fram að honum þætti gaman að gera eitthvað nýtt, en telur það vera samvinnuverkefni stjórnarinnar.

Bæklingurinn hans Kjartans er stílhreinn og fallegur og í sama litaþema og einkennisbuxurnar hans. 
Það er ekki jafn mikið í honum og í bæklingnum hans Arnórs, en það er þó ekkert stórmál, enda eru stefnumálin færri og hnitmiðaðri. Hann fær meðmæli úr mörgum ólíkum áttum, meðal annarra Arnóri sjálfum (cute) og vini hans úr stjórn MH, sem hefur unnið með honum í verkefnum utan skólans. 
Kjartan mætti vera skýrari þegar kemur að því að útskýra sum stefnumál.

Eftirlætisstefnumál: Tebóin (Uppistandstebó, hljómsveitartebó ofl.)
Lélegasta stefnumál: Séð og heyrt í Cösu.

Einkunn bæklings: A-

Niðurstaða:
Kjartan og Arnór eru mjög ólíkir og burt séð frá öllu því klúðri og leiðindum sem þessar kappræður voru, þá gætum við ekki haft erfiðara val fyrir höndum.
Niðurstaðan mun þó alltaf vera góð.

Þetta er bara spurning um það hvort þið viljið þennan flippaða og yndislega, en SAMT svo netta gaur... eða hvort þið viljið þennan flippaða og netta, en SAMT svo yndislega gaur.

Skiljiði?


-EH

Kjörstjórnarmeðlimum fækkar


UPPFÆRT KL. 15:18
Áðan fluttu varðhundarnir fréttir af því að Hildur Ýr hefði verið rekin úr kjörstjórn. Kjörstjórnin hefur nú bent varðhundum á að Hildur Ýr hafi ekki verið rekin heldur hafi hún ákveðið að segja af sér eftir atburði dagsins. 

---- 

Ástæðan er eflaust sú að í dag kom hlutdrægni Hildar Ýrar bersýnilega í ljós, en reglan er að kjörstjórnarmeðlimir gæti fyllsta hlutleysis í kosningunum. Hildur tók skýlausa afstöðu í kappræðum dagsins gegn Arnóri Gunnari en Hildur Ýr er, eins og alþjóð veit, ástkona Kjartans Orra. 

Hildur Ýr og fleiri vógu að Arnóri fyrir að hafa tekið þátt í Herranótt á meðan hann sat í Framtíðarstjórn. Benda má á að slíkt hið sama gerðu bæði Kristín Ólafsdóttir og Adolf Smári án þess að Kári forseti gripi í taumana.  Kjartan er eini meðstjórnandi Framtíðarinnar sem hafnaði hlutverki í Herranótt. Ýmsum sögum hefur farið af ástæðum þess, en Kjartan sagði það vera „algjört prinsippmál“ að menn einblíndu á stjórnarstörfin á meðan þeir gegndu þeim.

Arnór virtist óviðbúinn umræðum um Herranæturþátttöku sína og varð greinilega bylt við þegar þessi mál báru á góma. Meðal annars sagði hann að þátttaka stjórnarmeðlima hefði ekki haft nein áhrif á störf Framtíðarinnar eftir jól. Varðhundarnir leyfa sér að efast um að það sé rétt.

Kappræðurnar í hádeginu urðu blóðugri en margir bjuggust við. Varðhundarnir fagna því. Jafnframt mega nemendur skólans hrósa happi yfir því að kjörstjórnin er hlutlausari í dag en hún var í gær.
- JPJ


UPPFÆRT KL. 17:18
Varðhundunum barst bréf frá Nóra með rauða nefið rétt í þessu og hér verður það birt í heild sinni. Vilji Kjartan koma einhverju á framfæri munu varðhundarnir ekki hika við að birta skilaboð frá honum.

Halló. Mig langar til að benda á að ég er mjög ósáttur við það hvernig mynd er máluð af þessu Herranæturmáli öllu saman. Jújú, ég neita því ekki að mér tókst ekki að svara spurningunum í dag nægilega vel og sýni því þess vegna skilning að þið hafið fjallað um þetta í færslunni áðan eins og gert var. 

Ég áttaði mig hins vegar á því um leið og ég steig niður af sviðinu að ég hefði átt að leggja meiri áherslu á það að ég fórnaði náminu. Eftir að ég gerðist óreglulegur núna eftir áramót hef ég sótt 9 tíma á viku til þess að geta ráðið betur við þessa blöndu. Ég stend við það sem ég sagði í dag: Herranótt kom ekki á neinn hátt niður á starfi mínu í Framtíðarstjórn. Það eina sem Herranótt kom mögulega niður á er námið og varð þetta til þess að ég þarf að læra mjög mikið í apríl. 

Á álagstíma Herranætur gerði ég a.m.k. (ath: a.m.k.!) jafnmikið og þeir Framtíðarstjórnarmeðlimir sem ekki tóku þátt í Herranótt. Mér tókst að útfæra þetta mjög vel og notaði daginn (þegar margir aðrir voru í skólanum) mikið fyrir störf Framtíðarinnar. Ég eyddi ótrúlega miklum tíma í Framtíðina á sama tíma og Herranótt var í gangi og finnst þess vegna ósanngjarnt að mótframbjóðandi minn komi eitthvað betur út úr þessu máli en ég. 

Framtíðin hefur alltaf verið í fyrsta sæti hjá mér og einmitt þess var það erfið ákvörðun að taka þátt í Herranótt - ég þurfti mikið að velta því fyrir mér hvort það gengi upp að taka þátt í Herranótt ef ég vildi halda Framtíðinni í fyrsta sæti. Þess vegna ráðfærði ég mig við fólk sem hafði tekið þátt í Herranótt og verið í stjórn á sama tíma (t.a.m. Guðmund Felixson og Einar Lövdahl) og komst að þeirri niðurstöðu að það hlyti að ganga upp að hafa Framtíðina í fyrsta sæti og taka samt þátt í Herranótt - sem var hárrétt. Það kom ekki á neinn hátt niður á starfi mínu í Framtíðarstjórn - það eina sem mætti afgangi var námið (sem ég mun nota apríl í að vinna upp). 

Ég ítreka að það að taka þátt í Herranótt var ein erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið. En þegar á hólminn var komið kom í ljós að hún var ein sú réttasta. Enginn getur neitað því - ekki einu sinni Kjartan. 

Kv. Arnór Gunnar


Fjölmiðlafárið heldur áfram

Ekki vissu varðhundarnir að útvarpsstöðin Kaninn 100,5 nyti sérstakrar hylli meðal MR-inga. Þess vegna varð okkur ekki um sel í morgun þegar kosningarnar í MR höfðu allt í einu borist þangað. Eins lygilega og það hljómar var Tryggvi Skarphéðinsson, frambjóðandi til Framtíðarstjórnar, fenginn í viðtal í morgunþátt Kanans. Voddafokk?

Fyrst hljómaði viðtalið eins og einhvers konar almenn kynning á kosningunum í MR. Tryggvi talaði um kosningafyrirkomulagið, stemninguna í MR í kosningavikunni o.s.frv. En eftir því sem leið á viðtalið fór það æ meira að hljóma eins og risastór auglýsing fyrir framboð Tryggva Skarphéðinssonar. Þetta gekk svo langt að Tryggvi var hreinlega farinn að þylja upp stefnumálin sín og tala um það hvað hann gæti gert fyrir Framtíðina. Sá varðhundur sem þetta skrifar heyrði Tryggva segja nær orðrétt að mikilvægt væri að „casa sé heimilislegur og þægilegur staður til að slappa af.“ Jafnframt talaði hann um einhvern tan- og grillviðburð sem hann vill halda í Nauthólsvík næsta sumar. Erfitt er að sjá hvernig svona lagað á erindi við hlustendur Kanans.

Varðhundarnir eru hvumsa. Hvernig atvikaðist það eiginlega að Tryggvi Skarphéðinsson var fenginn í drottningarviðtal á Kananum? Af hverju á Kananum, hallærislegri útvarpsstöð sem nær enginn hlustar á? Er það eðlilegt að fjölmiðlar séu farnir að skipta sér af nemendafélagskosningum í menntaskóla? Og hvers vegna taka frambjóðendur þátt í þessum skrípaleik? Er þeim ekkert heilagt?


                   Hvers vegna var Tryggvi að tala um framboðið sitt í útvarpsviðtali?

- JPJ

Monday, March 26, 2012

Franzka Byltingin

"Franzka" byltingin


Nemandi áður ókunnur Varðhundunum hefur vakið athygli okkar. Einkennilegt nafnið birtist OF oft á frambjóðendalistanum. Hvað hefur hann á prjónunum?
Hvaða framapotari er þetta og hvaðan kom hann eiginlega?

Franz er að bjóða sig fram í íþróttaráð. Listin heitir því hallærislega nafni "sex" svo þá geta þau sagt "SEXÝ ÍÞRÓTTARÁÐ hahaha LOL FOKK HVAÐ VIÐ ERUM SNIÐUG" og er hann skipaður:
  • Benedikt  Blöndal 5.X,                
  • Franz Jónas Arnar Arnarsson, 5. R,
  • Gissur Atli Sigurðarson, 3.D,
  • Rakel Björk Björnsdóttir, 3.E
  • Stefán Snær Ágústsson, 5.R,
Hver er FRANZ? einnig: LEGEND FRAMBJÓÐENDUR! Æ, krakkar, ef aðeins stærfræðikennarar mættu kjósa, þá væruð þið í góðum málum...

Franz er einnig að bjóða sig fram í Loka, með þessum "spöðum"
framboðið heitir "Kokk" ...Er Franz einhver sóðastrákur?


  • Guðbjörg Erla Ársælsdóttir, 5.R
  • Sunnefa Gunnarsdóttir, 5.R
  • Franz Jónas Arnar Arnarson, 5.R
  • Benedikt Blöndal , 5.X
  • Karólína Jóhannsdóttir, 3.A

  • Franzmaðurinn lætur ekki þetta ekki nægja heldur bíður sig einnig fram í ... BÍÐIÐ EFTIR ÞVÍ... Félagsheimilisnefnd.
    Tjah, eitthvað virðist Franz hafa misskilið því að embættin sem að hann sækist eftir eru lítilvægleg og það er eiginlega öllum drullusama.

    Listin heitir Ástarpungarnir 
    Ástarpungarnir

  • Bjarni Hannesson, 5.Z
  • Finnur Marteinn Sigurðsson, 5.Z
  • Franz Jónas Arnar Arnarsson, 5.R
  • Guðbjartur Þráinsson (skiptinemi), null
  • Hjalti Sigurður Karlsson, 5.R
  • Páll Sólmundur H. Eydal, 4.Z
  •                                



    LBB

    Er bleikt.is málgagn Steinteins?


    „Þetta myndband er nú með því metnaðarfyllra sem við höfum séð.“ Svo segja pennarnir á bleikt.is um nýjasta útspil Steinunnar Steinþórs, myndband þar sem hún valhoppar um Ingólfstorg með vinum sínum og syngur lofsöng um sjálfa sig. Hún kallar sjálfa sig „legend.“ Má það?

    Það hlýtur að vekja grunsemdir þegar fjölmiðlar landsins eru farnir að hampa einu framboði til embættis í Lærða skólanum umfram önnur. Varðhundarnir velta því fyrir sér hvað búi að baki. Hefur Steinunn einhver tengsl við aðstandendur bleikt.is? Hefur hún selt Hlín Einarsdóttur sálu sína? Getur hugsast að Steinteinn ætli að ganga erinda Björns Inga Hrafnssonar, fjölmiðlakóngs, ef hún nær kjöri?

    Heyrst hefur að Steinunn Steinþórs hafi byrjað að skipuleggja kosningabaráttu sína meðan hún var í móðurkviði... eða að minnsta kosti frá því að hún var í 3. bekk. Hvað segir það okkur? Er Steinunn kannski kvenkyns útgáfan af Þengli? Getur hugsast að barnastjarnan Árni Beinteinn sé aðeins peð í risastóru valdatafli? Þetta eru þær sprningar sem MR-ingar hljóta að velta fyrir sér um þessar mundir.

    - JPJ

    Leyndur áróður

    Varðhundum barst nafnlaus ábending frá athugulum nemenda: 

    Það er stórkostlegt hvað Adolfi Smára tekst að vera sjálfhverfur í öllum meðmælum sem hann hefur veitt frambjóðendum. Eiginlega magnað hvernig honum tekst að snúa þeim öllum upp í meðmæli með sjálfum sér.

    Dæmi 1 - meðmæli Adolfs fyrir Gunnar Birni„Nú lýkur brátt einu farsælasta starfsári Framtíðarinnar í mörg ár og brátt kveðjum við krakkarnir í stjórninni embættisverk okkar. Í þessari viku verða nýjir einstaklingar kosnir í stjórn okkar elskulegu Framtíðar og munu þau þurfa í heilt ár að takast á við ýmsar tilfinningar. Gleði, reiði, þreyta, gremja og brjálæði einkenna störf Framtíðarinnar og þarf því súper flotta manneskju til að brotna ekki. (...) Gunnar mun leggja allt á sig of meira til að sjá til þess að Framtíðin verði jafn frábær og hún var í ár og ég hvet ykkur að gefa honum tækifæri til þess.“

    Dæmi 2 - meðmæli Adolfs fyrir Tryggva Skarp„Nú fer einu sterkasta starfsári Framtíðarinnar að ljúka og endurnýjunin sem fylgir sér í kosningum að hefjast. Framtíðin fékk góða skráningu í ár, hélt tvö mögnuð böll, var með fjölbreytta viðburði og síðast en ekki síst voru Loka Laufeyjarson blöðin frábær. (...) Við í Framtíðarstjórn settum strax þá reglu að engin blöð færu í prentun nema að augýsingasala myndi núlla út prentkostnað.“

    Það er augljóst að Adolf svífst einkis og notar hvert einasta tækifæri til þess að beina sviðsljósinu að sjálfum sér. Meira að segja í MEÐMÆLUM, þegar aðalmálið er að tala um kosti frambjóðandans. Hallærislegt, vægast sagt. 


















     ...... úff....






    LBB
     

    Sunday, March 25, 2012

    Klámvæðing kosninganna

    Nú þegar kosingaáróðurinn er kominn á fullt á facebook er um að gera að skoða hvers konar bellibrögðum frabjóðendur ætla að beita í ár.

    Varðhundar hafa tekið eftir ýmsu áhugaverðu, en þó lítur út fyrir að klámvæðingin hafi endanlega náð tökum frambjóðendum.

    Boys are us í Kakóland


    Það hefur vissulega ekki farið framhjá neinum að Nils Nowenstæn finnst gaman að fara úr fötunum. Hér hefur hann fengið tvo drengi (sem komast ekki í hálfkvisti við fullkomna andlits- og líkamsbyggingu hans) til að sitja fyrir með honum.

    Það er áhugavert að einungis helmingur fraboðsins fær að koma nakinn fram, en hinn helmingurinn gælir við börn með brauði á meðan Nils og félagar gæla við hvorn annan með rjóma. Nafn framboðsins vísar einnig til dótabúðar sem gerir þetta allt saman ennþá pervertískara og ruglingslegra


    WTF?!


    Sex-í Íþróttaráð


    Ég nenni eignlega ekki að tala um þetta.
    Lélegt og ófrumlegt nafn með vísun í kynþokka en tengist ekki framboðsmyndinni á neinn hátt.
    Prump í bala.

    Ekkert sérstaklega sexý, en samt alveg sætt.



    Gluggað í MT

    Vesalings busadúllurnar virðast vera gegnsýrðar þeirri mýtu að „kynlíf selji", og það sést greinilega á framboðsmyndinni þeirra.


    Hvert stefnir þessi skóli?
    X-Þykkir í íþróttaráð

    Hér eru Nils og félagar mættir aftur, en að þessu sinni í fötum. Þeir deyja þó ekki ráðalausir, vegna þess að myndin er tekin í sturtuklefa þar sem þeir eru rennandi blautir og nuddast hver upp við annan og beina vísifingri út í loftið, en það gæti verið einhvers konar reðurtákn. 

    Daði Laxdal er góð viðbót í hópinn...


    Varðhundar vona innilega að ódýr sölumennska og klámvæðing verði ekki ennþá meira áberandi í vikunni sem er að hefjast...

    -EH

    Árslisti Varðhunda 2012


    Lyftuferð ársins: Hrafn & Adda
    Camouflage  ársins: Silja Collega
    Facebook addari ársins: Vífill busi
    Haugur ársins: Þorgeir Sigurðsson
    Spjallsíða ársins:  Allar aðrar síður en Skólafélagssíðan
    Herranæturmeðlimir ársins: Framtíðarstjórn
    Internet ársins: Signalið frá  Austurvelli sem næst á Íþöku sem var stöðugra en netið í Cösu
    Fullur ársins: Arnór Gunnar Gunnarsson
    Námsmaður ársins: Þengill Björnsson
    Brotthvarf ársins: Gunnar Bjarni, Þengill, Dungal saman í MH
    Hrekkur ársins: Tölvupóstsmálið mikla
    MR-ingur ársins: Gísli Örn Guðbrandsson
    Busahunter ársins: Hrafn Dungal
    Amtmannsstígsgrúppía ársins: Soffía Gunnarsdóttir
    Pimp ársins: Jakob Gunnarsson sem seldi systur sína
    Umræðuefni ársins: Maðurinn er góður
    Peningasóun ársins:  „Hot Chip"
    Nyng ársins: Yngvi Rektor
    Kennari ársins: Feiti heimdellingurinn
    Uppistand ársins: "Siðlausa"   uppistand Gunnars Jörgens
    Kærustupar ársins: Borgógaurinn og businn
    "Dreki" ársins: Feiti  heimdellingurinn
    Skólaskírteini ársins: Framtíðarskírteinin (sem komu mánuðum á undan Skólafélags)
    „Hvað gerir þetta embætti eiginlega eftir jól?" ársins: Scriba scholaris
    Freyja Haraldsdóttir ársins: Ólafur Kjaran Árnason
    Feeder ársins: Hrafn Dungal
    Fg-ingur ársins: Valgerður Anna Hannesdóttir
    Gjörningur ársins: Erótískt líknardráp
    Wannabe FG-ingur ársins: Áslaug Ben
    Félag gamalmenna ársins: Öldungafélagið
    Wannabe Kleopatra: Toppurinn
    Skápahommi ársins: Árni Lár
    40 kíló ársins: Árni Lár
    Talsmaður Icesave ársins: Garðar Benedikt
    Leynipar ársins: Elísabet Brynjars og Þorsteinn Friðrik
    Sifjaspell ársins: Stella og Haffi
    Bene sig ársins: Garðar Benedikt Sigurjónsson
    Inspector ársins: Inspector Platearnum
    Viðburður ársins: Skólafundurinn aka Landsdómur í Cösu aka Aftaka Þengils
    Samningur ársins: Samningur Þengils viða Adda Exos
    Hetja ársins: Þengill Björnsson
    Félag ársins: Gjörningafélagið
    Ógagnsæi ársins: Fjármál Skólafélagsins
    Bingóskets ársins: Parkour
    Árslisti ársins: Þessi árslisti

    Colleguframbjóðendur

    Heyrst hefur... 


    ... að kosningavídjó Steinunnar Steinþórs sé í bígerð og er orðrómur á reiki um að sokkaballslagið hafi öðlast nýtt líf í því. Varðhundar bíða spenntir.


    við viljum að það sé alltaf gaman
    ...að Jóhanna Preethi hafi verið collegan hennar Birnu í ár og unnið skítverkin hennar. Við höfum einnig áræðanlegar heimildir um að hún sé hluti af „Stóra planinu".
    "Kjóstu mig eða ég töfra þig með indversku töfrunum mínum og ég er alltaf að tala um að ég sé indversk lestu bara MT eða eitthvað það fer ekki framhjá neinum að ég er frá INDLANDI!!!"
    ...að Anna Guðrún sé í MR (þú fréttir það fyrst hér).
    "Já, ég hef ALLTAF verið í MR..."
    ...að Magnús Sigurðarson komi bugaður af reynslu úr félagsheimilisnefnd. Hann ætlar víst að nýta reynslu sína af því að selja rúnstykki í undirbúningi söngkeppninnar.
    Hávaxni Jesús kemur félagslífinu til bjargar 

    LBB

    Stóra planið 2012?


    Það muna eflaust flestir eftir „Stóra planinu 2010", þegar Albert Guðmundsson ætlaði að vera forseti Framtíðarinnar, Þengill quaestor, Sigurður Helgi collega o.s.fr. Planið mistókst þó hrapalega.  

    Með þetta til hliðsjónar er áhugavert að skoða frambjóðendur í Skólafélagsstjórn árið 2012:


    Inspector Scholae

    Hörn, scriba, Heiðarsdóttir gefur kost á sér í embætti Inspectors Scholae, en hún hefur lítið annað gert en að undirbúa sig fyrir embættið síðan hún steig fyrst fæti í MR. Eins og sönnum framapotara sæmir byrjaði hún á Skólablaðinu og stóð sig ágætlega sem ritstýra þess. Í ár sat hún svo í verstu skólafélagsstjórn frá upphafi vega en telur sig þó vera þess fallin að stjórna félagslífinu á næsta ári.

    - Hörn er kærasta Alberts Guðmundssonar.

    Sæt saman

    Quaestor Scholae

    Sólveig Ásta Einarsdóttir er sjarmerandi stúlka með bein í nefinu, efnilegur ræðuskörungur og ein af ritstýrum Menntaskólatíðinda á vorönn 2012. Hún er sú eina sem gefur kost á sér í embætti gjaldkera Skólafélagsins árið 2012. Maður spyr sig eflaust hvort að það sé ekki bara gott og blessað að hún sé sjálfkjörin, enda er Sólveig „mjög hæf" að mati vinkvenna hennar. Varðhundar setja þó spurningamerki við hæfni 17 ára barns til þess að fara með milljónirnar sem Skólafélagið veltur ár hvert.

    - Sólveig Ásta er kærasta Sigurðar Helga Birgissonar og besta vinkona Harnar. 

    Scriba Scholaris

    Birna Ketilsdóttir Scham kom fljúgandi inn í MR eins og fagurt fiðrildi og heillaði alla upp úr skónum með útgeislun sinni og afslöppuðum persónuleika :)
    Skólaganga hennar hefur verið draumi líkust, enda hún hóf feril sinn í Herranætursýningunni Draumi á Jónsmessunót og sat svo (skv. embættismannatalinu í Morkinskinnu) í Herranæturstjórn á þessu ári. Á sama tíma sat hún í ritstjórn Menntaskólatíðinda með bestu vinkonu sinni Sólveigu Ástu, en þess má einnig geta að þær vinkonurnar hófu kosningabaráttu sína á ansi ódýran hátt með „leyndum" kosningaáróðri í síðasta tölublaði.

    - Birna er fyrrverandi kærasta Þengils Björnssonar og besta vinkona Sólveigar Ástu og Harnar.  

    Þær eru grimmar, vinkonurnar 
    Já, það lítur svo sannarlega út fyrir að fyrrum „Konungar" Menntaskólans í Reykjavík þrái að upplifa brostna drauma í gegnum drottningarnar í lífi sínu.

    Varðhundar trúa að minnsta kosti ekki á tilviljanir.


    -EH

    Varðhundar Lýðræðisins 2012

    Við erum mættir
    vaknaðir,
    á verði.

    Við erum Varðhundar 2012.